Forsætisnefnd fundar vegna akstursmála á mánudag

Fjöldinn allur af fyrirspurnum um starfskjör alþingismanna, ýmist með ósk um upplýsingar um heildarkostnað eða sundurgreindar greiðslur og endurgreiðslur til einstakra þingmanna hefur borist til forseta alþingis, þingmönnum og skrifstofu þingsins.

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.
Auglýsing

Farið verður yfir hvernig upp­lýs­ingum um starfs­kjör alþing­is­manna verður miðlað fram­vegis á fundi for­sætis­nefndar næst­kom­andi mánu­dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­seta alþing­is, Stein­grími J. Sig­fús­syni.

Í henni kemur jafn­framt fram að í dag og und­an­farna daga hafi hon­um, þing­mönnum öllum og skrif­stofu þings­ins borist fjöld­inn allur af fyr­ir­spurnum um starfs­kjör alþing­is­manna, um nán­ast alla þætti þeirra, ýmist með ósk um upp­lýs­ingar um heild­ar­kostnað eða sund­ur­greindar greiðslur og end­ur­greiðslur til ein­stakra þing­manna.

„Næst á dag­skrá í þessu máli er að for­sætis­nefnd Alþingis mun halda áfram umfjöllun sinni um þær reglur sem í gildi eru og taka þær til end­ur­skoð­un­ar, fyr­ir­komu­lag þeirra, eft­ir­fylgni og upp­lýs­inga­gjöf. Fyrsta skrefið er fundur for­sætis­nefndar nk. mánu­dag þar sem málið verður rætt og m.a. farið yfir hvernig upp­lýs­ingum um þessi mál verður miðlað fram­veg­is. Eins og kom fram í til­kynn­ingu minni fyrr í vik­unni hafa hug­myndir og drög að reglum í þeim efnum verið til umræðu í nefnd­inni um all­nokkurn tíma.

Beiðnum fjöl­miðla um frek­ari upp­lýs­ingar verður vísað inn í vinnu for­sætis­nefndar og henni hraðað eins og kostur er,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Auglýsing

Í frétt Kjarn­ans frá því í fyrra­dag kemur fram að til skoð­unar hafi verið á und­an­­förnum mán­uð­um, og meðal ann­­ars rætt í for­­sæt­is­­nefnd Alþing­is, að auka upp­­lýs­inga­­gjöf um kjör og starfs­­kostn­að­­ar­greiðslur alþing­is­­manna þannig að aðgangur að þeim verði öllum auð­veldur og þær birtar á vef þings­ins. „Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyr­ir­komu­lagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upp­­lýs­ingum um þessi mál. Mark­miðið er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þing­­manna og full­komið gagn­­sæi ríki. – Þing­­mönnum er að auð­vitað í sjálfs­­vald sett hvaða upp­­lýs­ingum þeir koma sjálfir á fram­­færi um sín kjör, eins og verið hef­­ur,“ sagði í til­kynn­ingu frá for­seta alþingis í fyrra­dag. 

Ástæða þess að fjöldi fyr­ir­­spurna hefur borist frá fjöl­miðlum er sú að síð­­ast­lið­inn fimmt­u­dag svar­aði for­­seti Alþing­is fyr­ir­­­spurn Björns Leví Gunn­­­ar­s­­­son­ar, þing­­­manns Pírat­­­ar, um akst­­­ur­s­­­kostn­að. Í svari for­­­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­­­menn sem fengu hæstu skatt­­­lausu end­­­ur­greiðsl­­­urnar þáðu á síð­­­­­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra.

Ásmundur Frið­­­riks­­­son, þing­­­maður Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, gekkst hins vegar við því í sam­tali við RÚV á föst­u­­­dags­morgun að vera sá sem trónir á toppi list­ans. Hann fékk sam­tals 4,6 millj­­­ónir króna end­­­ur­greiddar í fyrra, eða 385 þús­und krónur á mán­uði skatt­frjálst. Greiðsl­­­urnar til Ásmundar voru um 16 pró­­­sent af heild­­­ar­end­­­ur­greiðslum til þing­­­manna vegna akst­­­ur­s. Ekki liggur fyrir á þess­­­ari stundu hvaða aðrir þing­­­menn eru á topp tíu list­an­­­um.

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­­­lýs­ingar um hvaða þing­­­menn fái end­­­ur­greiðslu vegna akst­­­urs, en án árang­­­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­­­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­­­menn hefðu fengið end­­­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­­­lýs­ingar um hvaða þing­­­menn var að ræða. Þær upp­­­lýs­ingar þóttu þá sem nú of per­­­són­u­­­leg­­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent