Birna: Hvatti til þess að konur fengju líka að fara í viðtalshóp

Birna Einarsdóttir
Auglýsing

Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, seg­ist, í við­tali við Morg­un­blað­inu, hafa hvatt til þess að hæfar konur fengju einnig að kom­ast í við­tals­hóp, vegna ráðn­ingar for­stjóra Borg­un­ar, en Sæmdur Sæmunds­son tók við því starfi á dög­un­um, eftir að Haukur Odds­son hætti.

„Ég hvatti stjórn Borg­unar til­ að taka við­töl við kandídata af báðum kynj­um. Þá var ég upp­lýst um að það væru ein­göngu karlar á leið í við­töl og ég vissi af því að það hefðu mjög hæfar konur einnig ­sótt um. Ég taldi það því ekki skaða ferlið að það væri rætt við fleiri hæfa ein­stak­linga. Í lokafas­an­um í ráðn­ing­ar­ferl­inu var ein­göng­u ­tekið við­tal við einn aðila en þá lýsti ég þeirri skoðun minni að það hefði átt að vera rætt við fleiri að­ila við svona stóra ákvörð­un,“ segir Birna í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag.

Í gær var greint frá því í Morg­un­blað­inu, að „gremja“ væri meðal hlut­hafa hjá Borgun vegna þess sem kallað var afskipti Birnu af því, hver yrði nýr for­stjóri. 

Auglýsing

Íslands­­­banki er stærsti hlut­hafi Borg­un­­ar, með 63,5 pró­­sent hlut, en íslenska ríkið er eig­andi Íslands­­­banka. For­­maður stjórnar Borg­unar er Erlendur Magn­ús­­son, og er Íslands­­­banki með þrjá stjórn­­­ar­­menn af fimm. Aðrir í stjórn eru Björg Sig­­urð­­ar­dótt­ir,  Hall­­dór Krist­jáns­­son, Óskar Vet­­ur­liði Sig­­urðs­­son og Sig­rún Helga Jóhanns­dótt­­ir.

Í Morg­un­­blað­inu í gær sagði að þegar hafi verið ákveðið að óska ekki eftir kröftum tveggja stjórn­­­ar­­manna, á aðal­­fundi í mars, þeim Erlendi stjórn­­­ar­­for­­manni og Sig­rúnu Helg­u. 

Birna segir að ekki sé óeðli­legt að gera breyt­ingar á stjórn­inni, en í til­felli Sig­rúnar Helgu þurfti að gera breyt­ingar vegna starfa hennar á öðrum vett­vangi. Aðal­fundur Borg­unar fer fram í mars.

Með­eig­endur Íslands­banka að Borgun eru Eign­­ar­halds­­­fé­lagið Borgun slf., sem á rúm­­lega 32 pró­­sent hlut, og BPS ehf. sem á tvö pró­­sent.

Birna ítrekar enn fremur að Sæmundur njóti fyllsta traust Íslands­banka í störfum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent