Samanlagður hagnaður ríkisbanka 33 milljarðar króna

Íslandsbanki er 100 prósent í eigu ríkisins og Landsbankinn rúmlega 98 prósent.

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans
Auglýsing

Hagn­aður Lands­bank­ans hf. á árinu 2017 nam 19,8 millj­örðum króna eftir skatta, sam­an­borið við 16,6 millj­arða króna á árinu 2016. 

Hagn­aður Íslands­banka nam 13,2 millj­örð­um, og því er sam­an­lagður hagn­aður rík­is­bank­anna 33 millj­arðar króna, eða sem nemur tæp­lega 95 þús­und krónum á hvern íbúa lands­ins.

Lands­bank­inn er rúm­lega 98 pró­sent í eigu rík­is­ins en Íslands­banki er 100 pró­sent í eigu rík­is­ins.

Auglýsing

Lands­bank­inn til­kynnti um upp­gjör sitt í gær, en áður höfðu bæði Íslands­banki og Arion banki til­kynnt um sín upp­gjör.

Arion banki hagn­að­ist um 14,4 millj­arða í fyrra, og er sam­an­lagður hagn­aður stóru bank­anna því 47,4 millj­arðar króna, sem er um 136 þús­und krónur á hvern íbúa lands­ins.

Arð­semi eigin fjár Lands­bank­ans eftir skatta var 8,2% á árinu 2017, sam­an­borið við 6,6% árið 2016, að því er segir í til­kynn­ing­u. 

Vöxtur í lánum umfram hag­vöxt

Hreinar vaxta­tekjur juk­ust um rúma 1,6 millj­arða króna milli ára og námu 36,3 millj­örðum króna árið 2017. Hreinar þjón­ustu­tekjur Lands­bank­ans hækk­uðu um 8% á milli ára og námu 8,4 millj­örðum króna. Tekju­aukn­ing er einkum vegna auk­inna umsvifa í mark­aðsvið­skiptum og eigna­stýr­ingu. Aðrar rekstr­ar­tekjur námu 7 millj­örðum króna og hækk­uðu um 7% á milli ára. Skýrist hækk­unin einkum af jákvæðum gang­virð­is­breyt­ingum óskráðra hluta­bréfa. Jákvæð virð­is­breyt­ing útlána nam 1,8 millj­arði króna sam­an­borið við nei­kvæða virð­is­breyt­ingu upp á 318 millj­ónir króna árið 2016, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá bank­an­um.

Heild­ar­eignir Lands­bank­ans juk­ust um 81,7 millj­arða króna á milli ára og námu í árs­lok 2017 alls 1.193 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar námu heild­ar­eignir hins rík­is­bank­ans 1.036 millj­örðum króna.

Útlán juk­ust um 8,5% milli ára, eða um 72 millj­arða króna, en það er tölu­vert umfram hag­vöxt, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum um hann.

Í árs­lok 2017 voru inn­lán frá við­skipta­vinum 605 millj­arðar króna, sam­an­borið við 590 millj­arða króna í árs­lok 2016. „Eigið fé Lands­bank­ans í árs­lok 2017 var 246,1 millj­arður króna sam­an­borið við 251,2 millj­arða króna í árs­lok 2016. Á árinu 2017 greiddi Lands­bank­inn 24,8 millj­arða króna í arð til hlut­hafa. Eig­in­fjár­hlut­fall Lands­bank­ans í árs­lok 2017 var 26,7%, sam­an­borið við 30,2% í árs­lok 2016. Fjár­mála­eft­ir­litið gerir 21,4% heild­ar­kröfu um eig­in­fjár­grunn Lands­bank­ans,“ að því er segir í til­kynn­ingu frá bank­an­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent