Ríkissjóður selur hlut sinn í Arion banka til Kaupþings

Ríkið selur hlut sinn í Arion banka til Kaupþings á 23,4 milljarða króna. Heildarávinningur ríkisins vegna fjárhagslegra hagsmuna í Arion og samskipta við Kaupþing er metinn á ríflega 150 milljarða króna.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hef­ur, að und­an­gengnu sam­ráði við ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og rík­is­stjórn, fall­ist á til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins um sölu á 13 pró­sent hlut rík­is­sjóðs í Arion banka til Kaup­skila ehf., dótt­ur­fé­lags Kaup­þings ehf., fyrir 23,4 millj­arða króna.

­Salan fer fram á grunni kaup­réttar sem samið var um í hlut­hafa­sam­komu­lagi íslenska rík­is­ins og Kaup­þings frá árinu 2009. Kjarn­inn greindi fyrst frá því að kaup­rétt­ur­inn hefði verið virkj­aður 13. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Í frétt á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir að verðið sé mjög ásætt­an­legt. „Ávinn­ingur af fjár­mögnun rík­is­ins á Arion banka í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar haustið 2008 felst í ávöxtun eig­in­fjár og hreinum vaxta­tekjum vegna víkj­andi lána sem rík­is­sjóður veitti Arion og bank­inn hefur end­ur­greitt. Auk þess fær rík­is­sjóður veru­legar tekjur vegna stöð­ug­leika­fram­laga Kaup­þings, þ.e. vegna skulda­bréfs Kaup­þings, ann­arra eigna og áætl­aðra tekna sam­kvæmt afkomu­skipta­samn­ing­i.“ Sam­tals sé áætl­aður heild­ar­á­vinn­ingur rík­is­ins vegna fjár­hags­legra hags­muna í Arion og sam­skipta við Kaup­þing met­inn á ríf­lega 150 millj­arða króna.

Auglýsing
Þar segir enn fremur að það sé ein­dreg­inn ásetn­ingur stjórn­valda að tryggja heil­brigt umhverfi fjár­mála­starf­semi og treysta umgjörð henn­ar. „Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp um hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi. Mark­mið vinn­unnar er að skapa traustan grund­völl fyrir umræðu, stefnu­mörkun og ákvarð­ana­töku um mál­efni er varða fjár­mála­kerf­ið, fram­tíð­ar­gerð þess og þró­un. Gert er ráð fyrir því að hóp­ur­inn skili skýrslu til ráð­herra um miðjan maí nk. sem verði í fram­hald­inu tekin til umfjöll­unar á Alþing­i.“

Í frétt­inni segir að í hlut­hafa­sam­komu­lag­inu sé kveðið á um hvernig kaup­rétt­ar­verðið skuli reiknað út. „Verðið mið­ast við að hluta­fjár­fram­lag rík­is­ins í bank­anum beri ávöxtun sem jafn­gildir fjár­magns­kostn­aði rík­is­sjóðs af um 9,9 ma.kr. hluta­fjár­fram­lagi að við­bættu 5% álagi á því tíma­bili sem rík­is­sjóður var eig­andi að hlutum í bank­an­um. Til frá­dráttar kaup­rétt­ar­verð­inu komu arð­greiðslur sem rík­is­sjóður hefur fengið sem eig­andi að bank­anum á tíma­bil­inu, en þær námu 2,7 ma.kr. Til við­bótar þessum arð­greiðslum fær rík­is­sjóður nú 23,4 ma.kr. vegna kaup­rétt­ar­ins, eða sam­tals 26,1 ma.kr.

Banka­sýslan afl­aði stað­fest­ingar end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Grant Thornton á útreikn­ingi kaup­verðs­ins sam­kvæmt kaup­rétt­ar­á­kvæð­un­um. Að mati Banka­sýsl­unnar er ávöxtun rík­is­sjóðs, sem lögð er til grund­vallar útreikn­ingi á kaup­rétt­ar­verð­inu, góð bæði með til­liti til vaxta og áhættu­á­lags. Útreikn­ingar sýna að árleg með­al­nafn­á­vöxtun rík­is­ins á hluta­fjár­fram­lag­inu til Arion banka, allt frá árinu 2008, er um 10,8%.

Með þessum mála­lyktum er rík­is­sjóður ekki lengur hlut­hafi í Arion banka. Stjórn­völd munu áfram gæta hags­muna rík­is­sjóðs gagn­vart bank­anum og sölu­með­ferðar á honum á grund­velli stöð­ug­leika­samn­inga. Má í því sam­bandi nefna að ríkið hefur mikla hags­muni af far­sælli sölu Arion banka því slíkt hámarkar virði afkomu­skipta­samn­ings sem er hluti stöð­ug­leika­samn­inga. Það er mat stjórn­valda að nið­ur­staðan sé rík­is­sjóði hag­felld og að hún sam­rým­ist vel áformum rík­is­stjórn­ar­innar um að draga úr eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækj­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent