Ljóst að „við gerðum óafsakanleg mistök“

Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Tindastóls hafa hætt störfum hjá félaginu.

Metoo
Auglýsing

For­maður og vara­for­maður knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls hafa hætt störf­um, og segj­ast þeir í yfir­lýs­ingu harmað að hafa gert mis­tök og sem lík­lega verði „aldrei hægt að bæta fyr­ir“.

Er yfir­lýs­ing­in, sem birt­ist á vefnum Feyki, sett fram í kjöl­far frétta Stund­ar­innar sem varða mál fyrrum starfs­manns kjnatt­spyrnu­deild­ar­inn­ar. 

Orð­rétt segja þeir Berg­mann Guð­munds­son og Guð­jón Örn Jóhanns­son í yfir­lýs­ing­unni: „Í kjöl­far fréttar fjöl­mið­ils­ins, Stund­ar­innar er varða mál fyrrum starfs­manns deild­ar­innar og mjög alvar­legra ásak­ana í hans garð er ljóst að deild­inni hafa orðið á mikil mis­tök. Mis­tök sem senni­lega verður aldrei hægt að bæta fyr­ir. Við viljum byrja á að taka heils hugar undir orð Aðal­stjórnar Ung­menna­fé­lags Tinda­stóls sem sagði m.a. í yfir­lýs­ingu sinni frá því í 25. febr­úar 2018, orð­rétt: „...Kemur þessi frétt í kjöl­far #MeToo umræð­unnar þar sem konur í fjöl­mörgum greinum stigu fram og sögðu frá sinni reynslu af kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­ferð­is­legu ofbeldi, þöggun og lít­ils­virð­ingu. Konur í íþróttum voru þar á meðal og áttu sumar af þeim sögum sem nístu hjartað hvað mest. Þessar frá­sagnir kvenn­anna í Stund­inni gerðu það einnig. 

Auglýsing

Það er mik­il­vægt að íþrótta­hreyf­ingin í heild sinni hlusti á þessar raddir þolenda og aðstand­enda þeirra, læri af þeim og bregð­ist við af fullum þunga. Ábyrgð stjórn­enda, for­manna, for­svars­manna og þjálf­ara er þar mik­il. Stjórn­endur Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls vilja því sér­stak­lega taka fram að félagið stendur með þolend­um. Við tökum ábyrgð okkar alvar­lega og við tökum mál­stað þolenda alvar­lega. Kyn­ferð­is­legt ofbeldi, kyn­ferð­is­leg áreitni, ein­elti eða annað ofbeldi verður ekki undir neinum kring­um­stæðum liðið í starfi Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls...“ Við þetta viljum við bæta og lýsa því hér með form­lega yfir að deild­inni urðu á stór mis­tök í maí á síð­asta ári með stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu sinni við Ragnar Þór Gunn­ars­son, þáver­andi leik­mann liðs­ins, sem dæmdur var fyrir kyn­ferð­is­brot. Sú yfir­lýs­ing átti ekki rétt á sér og þykir okkur leitt að hafa ekki staðið með okkar fólki, hafa valdið því von­brigðum og þolendum óþarfa sárs­auka. Hvað varðar mál fyrrum starfs­manns okkar sem fjallað er um í Stund­inni síð­ast­liðna helgi, en þar koma fram 12 stúlkur og segja sína sögu um sam­skipti við mann­inn, er ljóst að deild­inni urðu á óaf­sak­an­leg mis­tök við ráðn­ingu hans í barna- og ung­linga­starf félags­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unn­i. 

Þeir segj­ast síðan vona að með því að þeir stigi til hlið­ar, þá geti skap­ast friður í félag­inu. „Málum eins og hafa komið upp í umræð­una í kjöl­far #MeToo bylt­ing­ar­innar sem og öðrum málum sem ekki eiga heima í heimi íþrótt­anna, frekar en ann­ars­stað­ar. Eins og fram kemur í yfir­lýs­ingum Ung­menna­sam­bands Skaga­fjarðar (UMSS) og Aðal­stjórnar Ung­menna­fé­lags Tinda­stóls hefur vinna staðið yfir í vetur við að skrifa siða­reglur fyrir félagið og er það vel. Til að taka ábyrgð á mis­tökum okkar segjum við okkur frá störfum okkar fyrir félag­ið. Það er okkar von að með þess­ari yfir­lýs­ingu skap­ist friður um störf knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls og félags­ins alls,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent