Ávinningur ríkisins vegna Arion banka metinn 151,1 milljarðar

Endurreisn Arion banka hefur skilað ríkissjóði miklum ávinningi, samkvæmt samantekt stjórnvalda.

Arion Banki
Auglýsing

Sam­kvæmt sam­an­tekt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins er ávinn­ingur rík­is­ins af end­ur­reisn banka og grunni inn­lendra eigna Kaup­þings, sem síðar varð Arion banka, um 151,1 millj­arðar króna. 

Þar af eru verð­mæti vegna stöð­ug­leika­eigna 139,9 millj­arðar króna, að því er fram kemur í Hér má sjá hvernig verðmæti vegna stöðugleikaeigna skiptist.sam­an­tekt sem birt var á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í dag. 

Þessar upp­lýs­ingar eru í sam­ræmi við það sem áður hafði verið greint frá á vef Kjarn­ans, en í til­kynn­ingu stjórn­valda eru atriðin dreg­in. 

Auglýsing

Eins og kunn­ugt hefur ríkið selt 13 pró­sent hlut sinn í Arion banka fyrir 23,4 millj­arða króna, en það var gert eftir að Kaup­skil, dótt­ur­fé­lag Kaup­þings, ákvað að nýta sér kaup­rétt á hlutn­um, á grund­velli hlut­hafa­sam­komu­lags frá árinu 2009, eins og Kjarn­inn greindi frá þegar það var að ger­ast, 13. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Nú er unnið að sölu á Arion banka í gegnum og útboð og skrán­ingu. Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í dag, í tveimur ítar­legum frétta­skýr­ingum, þá hafa verið teikn­aðar upp sviðs­myndir í kynn­ing­um, þar sem fram kemur að mögu­legt sé að ná 80 millj­örðum úr Arion banka í gegnium víkj­andi skulda­bréf og arð­greiðsl­ur. 

Ráð­gjafar frá Kviku, sem ráðnir voru af Kaup­þingi til að aðstoða við söl­una á Arion banka í des­em­ber síð­ast­liðn­um, telja að allt of mikið af pen­ingum sé inni í bank­an­um. Í kynn­ingu sem þeir héldu fyrir nokkra íslenska líf­eyr­is­sjóði í jan­ú­ar, þegar þeir reyndu að sann­færa sjóð­ina um að kaupa um fimm pró­sent hlut í Arion banka, kemur fram að eigið fé bank­ans sé svo mikið að svig­rúm sé til greiðslu á yfir 80 millj­örðum króna út úr bank­anum ef ráð­ist verður í útgáfu víkj­andi skulda­bréfa. Án þess sé svig­rúmið samt 50 millj­arðar króna.

Til sam­an­burðar má nefna að eigið fé Arion banka um síð­ustu ára­mót var 225,7 millj­arðar króna. Því er það mat ráð­gjaf­anna að hægt sé að greiða rúm­lega þriðj­ung alls eigin fjár Arion banka út, ef ráð­ist yrði í að gefa út víkj­andi skulda­bréf sem myndu í kjöl­farið mynda hluta af eig­in­fjár­grunni bank­ans.

Kjarn­inn er með kynn­ing­una, sem er kyrfi­lega merkt trún­að­ar­mál, undir hönd­um, eins og greint var frá fyrr í dag, í umfjöllum Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent