Logi: Við erum mætt aftur til leiks

Formaður Samfylkingarinnar hvatti flokksmenn til samstöðu fyrir kosningar í vor.

7DM_4925_raw_1975.JPG
Auglýsing

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði í ræðu sinni við setn­ingu lands­fundar Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, á Reykja­vík Natura, að flokks­menn gerðu sér kannski ekki grein fyrir því, hversu mikið afrek hefði verið unnið að und­an­förnu. Flokk­ur­inn væri kom­inn aftur á „hnén“ og það væri meira en margir hefðu reiknað með. 

Þing­flokk­ur­inn væri sam­stilltur hópur hæfi­leika­fólks, sem vissu­lega mætti verið stærri. „Við erum mætt aft­ur til leiks, ætl­­um okk­ur góðan ár­ang­ur í sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­um í vor og verða aft­ur sá burð­ar­flokk­ur í ís­­lensk­um stjórn­­­mál­um sem al­­menn­ing­ur í land­inu þarfn­ast,“ sagði Logi.

Hann var einn í kjöri til for­manns og hlaut öll greidd atkvæði, og þannig ein­huga stuðn­ing flokks­ins.

Auglýsing

Hann gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina harð­lega, og sagði hana starfa eftir leynd­ar­hyggju og aug­ljóst væri, að hún réði ekki við það verk­efni að byggja upp félags­legan stöð­ug­leika. Það segði ákveðna sögu að stærstu aðild­ar­fé­lög ASÍ vildu segja upp kjara­samn­ing­un­um.

Hann gerði einnig #MeToo bylt­ing­una að umtals­efni og sagði að Sam­fylk­ingin ætti að vera kvenn­frels­is­flokkur og opinn fyrir þeim straumum og kröftum sem bylt­ingin hefði leitt úr læð­ingi. „Konur sem hafa stigið fram á liðnum mán­uð­um, undir merkjum #METOO, eru skýrt dæmi um það hverju sam­staða getur skil­að. Það hefur verið magnað að verða vitni að þeim krafti sem kallar á breytta stjórn­mála­menn­ingu og betri aðstæður kvenna í lífi og starf­i. Sam­fylk­ingin á að vera far­vegur fyrir aukið kven­frelsi og jafn­rétti almennt. Heil­brigt sam­fé­lag okkar sjálfra er ágætis próf­steinn á það hvort okkur er treystandi fyr­ir lands­stjórn­inni eða að reka sveit­ar­fé­lag,“ sagði Logi, og hvatti flokks­menn til dáða fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar framund­an. „Að lokum vil ég segja þetta. Það er heiður að sitja lands­fund­inn með ykkur um helg­ina. Ég veit ekki hvort þið gerið ykkur grein fyrir því hvaða þrek­virki hvert og eitt ykkar hef­ur unn­ið. Saman hefur okkur tek­ist að reisa flokk­inn uppá hnén aft­ur. Það voru alls ekki allir sem spáðu því. Og fyrir það vil ég þakka ykkur öll­u­m,“ sagði Logi.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent