Sigríður: Það verður „í minnum haft“ hvernig þingmenn greiða atkvæði

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra varði ákvörðun sína um skipan dómara við Landsrétt, og sagðist ekkert rangt hafa gert.

Sigríður Á. Andersen
Auglýsing

Það verður „í minnum haft“ hvernig þing­menn munu ráð­stafa atkvæði hér í dag. Þetta sagði Sig­ríður Á. And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, í lok ræðu sinnar á Alþingi á sjötta tím­anum í dag, þar sem til umræðu var til­laga um van­traust á hana, vegna skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt. 

Sig­ríður varði ákvörðun sína, og sagði hana hafa verið fylli­lega eftir lög­um. Hún sagði enn frem­ur, að þetta mál, í tengslum við skipan dóm­ara við Lands­rétt, væri dæmi um mál þar sem eðli­legt væri að dóm­stólar leystu úr málum þegar það væri ágrein­ingur um mats­kenndar reglur stjórn­sýsl­unn­ar. 

Van­traust­s­til­laga ráð­herra er nú rædd á Alþingi, sem Sam­fylk­ingin og Píratar standa að sam­eig­in­lega, en fyrsti flutn­ings­maður máls­ins er Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Auglýsing

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans í dag, og hefur verið rakið í umfjöllun Kjarn­ans um málið að und­an­förnu, þá snýst Lands­rétt­­ar­­málið um það að mats­­nefnd um hæfi umsækj­enda um dóm­­ara­emb­ætti við Lands­rétt, nýtt milli­­­dóm­­stig, lagði fram til­­lögu um 15 hæf­­ustu ein­stak­l­ing­anna í fyrra­vor til að taka við 15 stöð­­um. 

Sig­ríður ákvað að breyta þeirri til­­lögu og færa fjóra af lista mats­­nefnd­­ar­innar en setja fjóra aðra í stað­inn. Í des­em­ber 2017 komst Hæst­i­­réttur að þeirri nið­­ur­­stöðu að Sig­ríður hefði brotið gegn stjórn­­­sýslu­lögum með athæfi sínu í málum sem tveir mann­anna sem höfðu verið færðir af list­­anum höfð­uðu. Hinir tveir hafa síðan höfðað bóta­­mál á hendur rík­­inu, og má gera ráð fyrir að þau mál fari alla leið í dóms­kerf­in­u. 

Nú þegar hefur verið látið reyna á hæfi eins þeirra dóm­­ara sem bætt var inn á list­ann af Sig­ríði, Arn­­fríði Ein­­ar­s­dótt­­ur. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­son lög­­maður hefur kraf­ist þess að hún víki sæti í máli, eins og greint hefur verið frá á vef Kjarn­ans, sem hann rekur fyrir dóm­stólnum á grund­velli þess að hún hafi ekki verið skipuð í emb­ættið með réttum hætt­i. 

Í grein­­ar­­gerð hans fyrir Hæsta­rétti segir m.a.: „Það að stjórn­­­­­mála­­­menn, stjórn­­­­­mála­­­flokk­­­ar, til­­­­­tek­inn þing­­­meiri­hluti, sitj­andi rík­­­is­­­stjórn eða ein­stakur ráð­herra eigi hönk upp í bakið á ákveðnum dóm­­­urum grefur undan sjálf­­­stæði þeirra og getur með réttu veikt til­­­­­trú almenn­ings á dóms­­­kerf­in­u.“ 

Arn­­fríður er eig­in­­kona Brynjars Níels­­son­­ar, þing­­manns Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, sem vék úr odd­vita­­sæt­inu í kjör­­dæmi sínu fyrir síð­­­ustu kosn­­ingar og eft­ir­lét það Sig­ríð­i. 

Brynjar telur sig ekki van­hæfan til að taka þátt í atkvæða­greiðslu um van­traust­ið. Það gerir Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, heil­brigð­is­ráð­herra, ekki heldur, en fyrr­ver­andi maður henn­ar, Ást­ráður Har­alds­son, var einn þeirra sem færður var neðar á lista yfir þá sem mats­nefndin taldi hæf­asta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent