Tillaga um vantraust á dómsmálaráðherra felld

Sigríður Á. Andersen
Auglýsing

Til­laga um van­traust á Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra var felld á Alþingi, rétt í þessu. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, var fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unn­ar, en Sam­fylk­ingin og Píratar stóðu að henn­i. 

Atkvæði féllu þannig að 33 voru á móti til­lög­unni, 29 með­fylgj­andi og einn sat hjá, Berg­þór Óla­son Mið­flokki.

Tveir þing­menn Vinstri grænna, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jóns­son, studdu til­lögu um van­traust, en aðrir stjórn­ar­þing­menn voru á mót­i. 

Auglýsing

Til­lagan var sett fram vegna þess að ólög­lega hefði verið staðið að skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt, eins og stað­fest hefur verið með dómi Hæsta­rétt­ar, og að ráð­herra yrði að axla ábyrgð á þeirri nið­ur­stöð­u. 

Nokkuð harka­lega var tek­ist á um þessi mál á Alþingi, en Sig­ríður sagði meðal ann­ars í lok ræðu sinn­ar, að það yrði í „minnum haft“ hvernig þing­menn myndu greiða atkvæði um þessa til­lögu á Alþing­i. 

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn brugð­ust illa við þessum ummæl­um, og sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, að ráð­herra ætti ekki að hafa í hót­unum vegna þessa máls. Það væri öllum þung­bært, en Þor­gerður Katrín studdi til­lögu um van­traust eins og félagar hennar í þing­flokki Við­reisn­ar. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ítrek­aði stuðn­ing sinn við ráð­herra, og taldi ekk­ert nýtt hafa komið fram í mál­inu, sem gerði það að verk­um, að rétt væri að sam­þykkja van­traust gagn­vart ráð­herra. Þvert á móti væri málið þannig, að legið hefði fyr­ir, frá því það var fyrst til umfjöll­unar í þing­inu, að máls­með­ferðin hefði átt að vera önnur og betri. Sagð­ist hún sjálf hafa bent á þau atriði sem Hæsti­réttur síðan dæmdi um, er vörð­uðu rann­sókn­ar­skyldu við mat á umsækj­endum um starf dóm­ara. 

Hún sagð­ist ekki hafa stutt það, að þetta væri ástæða til afsagn­ar, þegar málið var fyrst til umræðu, og það sama ætti við núna. Hún ítrek­aði þó, að mik­il­vægt væri að bæta ferlið við skipan dóm­ara og læra af mál­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent