Vantraustið tekið fyrir á næstu tveimur sólarhringunum

Forseti Alþingis segist vera að ræða við stjórn og stjórnarandstöðu um hentugan tíma fyrir afgreiðslu á vantrauststillögu á hendur Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra. Allir sammála um að vilja ekki hafa svona hangandi yfir sér.

Steingrímur J. Sigfússon
Auglýsing

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis seg­ist gera ráð fyrir að kosið verði um van­traust á Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra á næstum tveimur sól­ar­hring­um.

Hann segir í sam­tali við Kjarn­ann að hann sé nú að heyra í öllum aðilum vegna van­traust­s­til­lögu sem þing­flokkar Pírata og Sam­fylk­ingar hafa lagt fram á hendur Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra.

„Ég er bara í því núna að heyra í aðil­um, flutn­ings­mönnum þess­arar til­lögu, for­sæt­is­ráð­herra og öðrum og sjá hvenær við getum komið þessu að,“ segir Stein­grím­ur.

Auglýsing

Hann segir það skipta alla máli að klára þetta sem fyrst, en ganga þurfi úr skugga um að full­skipað sé í öllum flokk­um. Vera kann að ein­hverjir séu til dæmis úti á landi og þá þarf að kalla þá þing­menn til baka.

„Það þarf líka að kom­ast til dæmis að sam­komu­lagi um ræðu­tíma og annað og síðan er hægt að kýla á þetta. Yfir­leitt eru báðir aðilar sam­mála um að hafa svona ekki hang­andi yfir sér.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­flokks­for­maður Pírata sendi yfir­lýs­ingu í morgun um að hefð sé fyrir því að van­traust­s­til­lögur séu teknar á dag­skrá þings­ins við fyrsta tæki­færi.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­arnir fimm hefðu allir tekið þátt í umræðu um að leggja fram van­­traust­s­til­lögu á Sig­ríði vegna fram­­göngu hennar í Lands­rétt­­ar­­mál­inu svo­­kall­aða. Þing­­flokks­­for­­menn þeirra fund­uðu í gær­morgun þar sem málið var rætt. Til stóð að annar fundur færi fram í dag, þriðju­dag, þar sem þing­­flokks­­for­­menn og for­­menn stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­anna til að taka ákvörðun um hvort og þá hvenær til­­laga um van­­traust yrði lögð fram. Ljóst er að þau áform hafa breyst og nú hafa þing­­menn tveggja flokka lagt fram van­­traust­s­til­lög­una. Kom­ist til­­lagan ekki á dag­­skrá á fimmt­u­dag er ljóst að bíða verður eftir afgreiðslu hennar í nokkurn tíma, þar sem nefnd­­ar­vika er á Alþingi í næstu viku og engir þing­fundir haldn­­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent