Bezos ríkasti maður sögunnar - Gæti keypt höfuðborgarsvæðið allt tvisvar

Jeff Bezos, 54 ára gamall Bandaríkjamaður, er sá fyrsti í sögunni sem er á lista Forbes með eignir upp á meira en 100 milljarða Bandaríkjadala. Eignir hans nú eru vel rúmlega það, eða nálægt 130 milljörðum Bandaríkjadala.

Bezos
Auglýsing

Jeff Bezos, stofn­andi og for­stjóri Amazon, er rík­asti maður heims, sam­kvæmt nýjum lista For­bes fyrir auð­ug­ustu ein­stak­linga heims­ins. Hann er sá fyrst í sög­unni sem á eignir upp á meira en 100 millj­arðar Banda­ríkja­dala, en næstur á eftir honum er nágranni hans við Lake Was­hington, á Seattle svæð­inu, Bill Gates, stofn­andi Microsoft.

Eignir hans nema um127,8 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 13 þús­und millj­örðum króna. Ólíkt mörgum öðrum sem eru á list­an­um, eru eignir Bezos að lang­mestu leyti óskuld­sett­ar. Yfir 90 pró­sent eigna hans eru í hluta­bréfum í Amazon en hann á ennþá 17 pró­sent hlut í smá­sölu- og tækniris­an­um.

Mark­aðsvirði Amazon hefur vaxið með ólík­indum hratt, frá því að Bezos stofn­aði fyr­ir­tækið árið 1994, þá sem net­verslun með bæk­ur. Fyr­ir­tækið varð til eftir að hann ferð­að­ist þvert yfir Banda­rík­in, frá New York til Seatt­le, eftir að unnið hjá vog­un­ar­sjóðum á Wall Street á árunum 1986 til 1994.

Auglýsing

Í dag, tæp­lega ald­ar­fjórð­ungi síð­ar, er Amazon virði 747 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 75 þús­und millj­örðum króna. 

Það er upp­hæð sem er 80 falt virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í heild sinni, bara til að setja hana í sam­hengi við ein­hverja þekkta stærð í íslenskum veru­leika.

Ef Bezos myndi selja hluta­bréf sín í Amazon, á núver­andi gengi, þá gæti hann stað­greitt allar fast­eignir og lóðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, tvisvar sinn­um, sé mið tekið af fast­eigna­mati rík­is­ins fyrir árið 2018.

Virði allra fast­eigna var tæp­lega 7.300 millj­arðar en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var það um 6 þús­und millj­arð­ar.

Á und­an­förnu ári jókst virði Amazon um tæp­lega 60 pró­sent, og hefur vöxt­ur­inn í mark­aðsvirði verið stans­laus. Fjár­festar virð­ast horfa til þess að Amazon hafi mikla mögu­leika í sínu við­skipt­lík­ani, og að flestir geirar hag­kerfa heims­ins muni með einum eða öðrum hætti tengj­ast þessu síbreyti­lega og stækk­andi fyr­ir­tæki, sem nú er með um 400 þús­und starfs­menn, að lang­mestu leyti í Banda­ríkj­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent