Gísli Hauksson hættir hjá GAMMA

Stofnandi GAMMA hefur verið búsettur erlendir frá árinu 2015 og ætlar nú að einbeita sér að eigin fjárfestingum.

Gamma-staff2-4647.jpg
Auglýsing

Gísli Hauks­son fyrr­ver­andi for­stjóri og annar stofn­enda GAMMA Capi­tal Mana­gement hefur látið af störfum hjá fyr­ir­tæk­in­u. 

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef GAMMA.

Gísli var annar stofn­enda GAMMA fyrir 10 árum, ásamt Agn­ari Tómasi Möll­er, og stýrði vexti og upp­bygg­ingu félags­ins. Fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt á þessum tíu árum en í lok síð­asta árs var félagið með um 137 millj­arða króna í stýr­ingu og rekstr­ar­hagn­aður þess árs var sá næst besti í sögu félags­ins. 

Auglýsing

Síðan 2015 hefur Gísli verið búsettur erlendis og á þeim tíma m.a. leitt upp­bygg­ingu á erlendri starf­semi félags­ins. 

Valdi­mar Ármann, for­stjóri GAMMA mun fyrst um sinn hafa yfir­um­sjón yfir starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í New York og London. Engin breyt­ing verður á hlut­hafa­hópi GAMMA, en Gísli er sjálfur stærsti hlut­haf­inn.

Í til­kynn­ingu segir Gísli, að hann muni nú ein­beita sér að öðrum fjár­fest­ing­um. „Ég læt nú af störfum hjá félag­inu sem ég stofn­aði fyrir um 10 árum og hefur átt hug minn allan þann tíma. Á þessum tíma­mótum við 10 ára afmæli félags­ins er gott til­efni til að breyta til og mun ég ein­beita mér í rík­ara mæli að öðrum verk­efn­um, m.a. eigin fjár­fest­ingum og fjöl­skyld­unn­ar, stjórn­ar­setu í fyr­ir­tækjum og verk­efnum á sviði menn­ing­ar­mála. Ég verð áfram stærsti ein­staki hlut­hafi GAMMA og mun styðja við frek­ari vöxt og við­gang félags­ins. Rekstur félags­ins er í góðum höndum sam­starfs­manna til margra ára og veit ég að GAMMA verður áfram í fremstu röð fjár­mála­fyr­ir­tækja,“ segir Gísli.

Þá er haft eftir stjórn­ar­for­mann­in­um, Hlíf Sturlu­dótt­ur, að framundan séu spenn­andi tímar hjá GAMMA þar sem stoð­irnar í rekstr­inum verði treystar enn frek­ar.

„Sam­starfs­fólk GAMMA þakkar Gísla fyrir sam­starfið og for­yst­una und­an­far­inn ára­tug. Það er eft­ir­sjá að honum úr rekstr­inum en líka skiln­ingur á því að hann vilji breyta til. Framundan eru spenn­andi tímar hjá GAMMA þar sem stoðir fyr­ir­tæk­is­ins verða treystar enn frekar og ýmis stór verk­efni verða leidd til lykta,“ segir Hlíf í til­kynn­ing­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent