Fjármálaráðherra „skellihló“ þegar kjararáð óskaði eftir launahækkun

Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra, segir að það sé ekki tilviljun að engin launahækkun hafi náð fram hjá kjararáði á hans vakt.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra 7DM_3031_raw_170614.jpg
Auglýsing

„Þessi ósk um aft­ur­virka hækkun kjara­ráðs barst í ráðu­neytið meðan ég var ráð­herra. Ég man vel við­brögð mín þegar ég var spurður álits á efni bréfs­ins. Ég fór að skelli­hlæja og hristi höf­uð­ið. Það var ekki til­viljun að kjara­ráð fékk ekki aft­ur­virka launa­hækkun meðan ég var ráð­herra.“

Þetta segir Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, á Face­book síðu sinni, þar sem hann gerir beiðni kjara­ráðs um launa­hækk­un, að umtals­efn­i. 

Eins og greint var frá í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarn­ans, þá sendi Jónas Þór Guð­munds­son, for­maður kjara­ráðs, bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og fal­að­ist eftir launa­hækkun fyrir ráð­ið. Bréfið var sent þann 14. sept­em­ber 2017, dag­inn áður en að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk.

Auglýsing

Sam­kvæmt lögum er það ráð­herra sem ákveður laun ráðs­ins hverju sinn­i. 

Í bréfi Jónasar er farið fram á að laun þeirra sem sitja í ráð­inu verði hækkuð um 7,3 pró­sent og að sú hækkun verði aft­ur­virk til 1. ágúst sama ár. Þessi beiðni var rök­studd með því að laun kjara­ráðs hefðu ekki hækkað frá því sum­arið 2016 og að mán­að­ar­leg launa­vísi­tala Hag­stofu Íslands hefði hækkað um áður­nefnda pró­sentu­tölu frá því að síð­asta hækkun hafði átt sér stað.

Bréf­inu var ekki svarað í rúman tvo og hálfan mán­uð. Í milli­tíð­inni fóru fram kosn­ingar og 30. nóv­em­ber 2017 tók rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við valda­taumunum á Íslandi. Í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sett­ist Bjarni Bene­dikts­son. Sex dögum eftir að hann tók við emb­ætti, þann 6. des­em­ber, barst Jónasi svar­bréf frá ráðu­neyt­inu. Í því var honum greint frá að fall­ist hafði verið á til­lögu hans um launa­hækkun kjara­ráðs og að hún myndi gilda frá 1. ágúst 2017.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent