„Gaman að sjá ykkur, velkomnir aftur til ársins 2009“

Sérstök umræða um Arion banka fór fram á Alþingi í dag. Þar tókust á núverandi forsætisráðherra, sem sat í ríkisstjórn sem gerði hluthafasamkomulag við kröfuhafa Kaupþings árið 2009, og fyrrverandi forsætisráðherra, sem gerði stöðugleikasamninganna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að núver­andi rík­is­stjórn hafi bundið rauða slaufu utan um eign sína í Arion banka og afhent vog­un­ar­sjóð­um. Nokkrum klukku­stundum síðar hafi verið upp­lýst að umfram eigið fé bank­ans væri 80 millj­arðar króna og að und­ir­liggj­andi eignir hans væri veru­lega van­metnar. Þar vís­aði Sig­mundur Davíð í umfjöllun Kjarn­ans um kynn­ingu sem ráð­gjafi Kaup­þings, stærsta eig­anda Arion banka, fluttu fyrir líf­eyr­is­sjóðum þegar þeir reyndu að fá þá til að kaupa hlut í bank­an­um. 

„Gaman að sjá ykk­ur, vel­komnir aftur til árs­ins 2009,“ segir Sig­mundur Davíð að rík­is­stjórnin hafi sagt við vog­un­ar­sjóð­ina sem eru nú stærstu eig­endur bæði Kaup­þings og Arion banka. Þetta kom fram í sér­stökum umræðum um Arion banka sem fram fór á Alþingi nú síð­deg­is.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var til and­svars. Hún rifj­aði upp í ræðu sinni að Sig­mundur Davíð hefði verið for­sæt­is­ráð­herra þegar stöð­ug­leika­samn­ingar voru gerðir við kröfu­hafa föllnu bank­anna og að hún þekki Sig­mund Davíð nægi­lega vel til að hann viti nákvæm­lega hvernig staðan raun­veru­lega sé. Ávöxt­unin af bæði hlut­hafa­sam­komu­lagi, sem gert hafi verið við kröfu­hafa Arion banka árið 2009 þegar bank­inn var fjár­magn­að­ur, og af stöð­ug­leika­samn­ing­unum sem rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs hafði gert árið 2015, væri mjög góð. 

Auglýsing
Bein ávöxtun á fram­lag rík­is­sjóðs til bank­ans væri tæp­lega ell­efu pró­sent á ári, stöð­ug­leika­samn­ing­arnir hafi tryggt mik­inn fjár­hags­legan ávinn­ing fyrir ríkið og að afkomu­skipta­samn­ingur sem var gerður hafi tryggt rík­inu hlut­deild í fram­tíð­ararð­greiðslum úr Arion banka. Síðan hrós­aði Katrín Sig­mundi Dav­íð. „„Ég vil bara segja það að ég tel að hátt­virtur þing­maður hafi bara staðið sig vel,“ og vís­aði þar til stöð­ug­leika­samn­ing­anna sem gerðir voru árið 2015. Því ættu allir að geta fagnað árangrinum af bæði hlut­hafa­sam­komu­lag­inu sem vinstri stjórnin gerði árið 2009 og stöð­ug­leika­samn­ingnum sem rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs gerði árið 2015. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent