Haraldur fer ekki í varaformanninn

Haraldur Benediktsson mun ekki gefa kost á sér í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi. Segir það taktlaust að miðaldra karl færi að keppa um slíkt við konu.

Haraldur Benediktsson
Auglýsing

Har­aldur Bene­dikts­son mun ekki gefa kost á sér í emb­ætti vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi. Þetta segir Har­aldur á Face­book.

Har­aldur seg­ist hafa fengið áskorun þess efn­is, en áður hafði hann aldrei hug­leitt fram­boð. Á þeim tíma hafi heldur eng­inn opin­ber­lega gefið í skyn áhuga á því trún­að­ar­starfi.

Fann fyrir góðum og breiðum stuðn­ingi - sem kom reyndar þægi­lega á óvart en þykir vænt um. Tek ég það sem við­ur­kenn­ingu fyrir störf mín. Takk fyrir það allt sam­an.“

Auglýsing

Har­aldur segir að Þór­dís Kol­brúnar R. Gylfa­dóttir hafi síðan stigið frma og lýst yfir sínu fram­boði. Hann telji það vera takt­laust að mið­aldra karl færi að keppa um slíkt við konu, sem sé þar að auki vinur og félagi úr sama kjör­dæmi. „Ein­stak­ling sem hefur alla burði til að vera fram­tíð­ar­leið­togi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ef þannig vindur fram.“

Har­aldur hefur lært að póli­tíkin sé ekki fyr­ir­sjá­an­leg og komi stöðugt á óvart. Hann hafi líka tekið þátt í að hún sé ekki alltaf fyr­ir­sjá­an­leg líkt og til­laga hans við for­manns flokks­ins í jan­úar um að Þór­dís Kol­brún yrði ráð­herra frekar en hann sjálfur þótt hún skipi 2. sæti list­ans í Norð­vestur kjör­dæmi, þar sem hann er odd­viit.

Það er ekki flókið fyrir mig að lýsa enn og aftur yfir stuðn­ingi við Þór­dísi - nú til vara­for­mennsku,“ segir Har­aldur og bætir við að tím­inn muni svo leiða í ljós hver niðu­staðan verði og ekki síst hans fram­tíð - en mörg verk­efni bíði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent