Ætla að nota peninga úr bönkum til að byggja upp vegakerfið

Sigurður Ingi Jóhannsson segir að ráðist verði í stórsókn á brýnum innviðaframkvæmdum á þessu ári sem ekki sé gert ráð fyrir í áætlum ársins 2018. Hann segir að þjóðin hafi viljað fá Framsóknarflokkinn til að stýra landinu.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Rík­is­stjórnin ætlar að nota fjár­magn frá bönkum sem íslenska ríkið á í til að byggja upp vega­kerf­ið. Þetta sagði Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í ræðu sinni á flokks­þingi flokks­ins í dag. 

Sig­urður Ingi sagði að fyrir kosn­ingar hafi verið lögð áhersla á að nota fjár­muni úr fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum til inn­viða­upp­bygg­ing­ar, það hafi verið skrifað í stjórn­ar­sátt­mál­ann og við það lof­orð verði stað­ið. Strax á þessu ári verði fjár­magn­aðar nýfram­kvæmdir í sam­göngum og ráð­ist í stór­sókn á brýnum fram­kvæmdum sem ekki hafði verið gert ráð fyrir í áætlun fyrir árið 2018.

Vill sam­eina Fjár­mála­eft­ir­lit og Seðla­banka

Sig­urður Ingi sagði að á annað hund­rað verk­efni hefðu verið talin upp í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem Fram­sókn á aðild að. Að hans sögn er vinna við tæp­lega 90 pró­sent aðgerð­anna í und­ir­bún­ingi, haf­in, komin langt á veg eða lok­ið.

Auglýsing

Sig­urður Ingi eyddi hluta ræðu sinnar í að tala um fjár­mála­kerfið og sagði að Hvít­bók­ar­vinnan sem standi yfir muni svara þeim spurn­ingum sem spurðar hafa verið um fram­tíð þess, t.d. um aðskilnað fjár­fest­inga og við­skipta, eign­ar­hald og stærð banka­kerf­is­ins. „Brýnt er að gera sér grein fyrir hvernig við viljum sjá þessa þætti fyrir okkur – við höfum löngum haft þá stefnu að fjár­mála­fyr­ir­tækin eigi að vera þjón­andi fyrir heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu með traust­um, trú­verð­ugum og ódýrum hætt­i.“

Hann sagði enn fremur að við end­ur­skoðun fjár­mála­kerf­is­ins sé það mat Fram­sókn­ar­manna að skyn­sam­legt sé að efla eft­ir­lit með kerf­inu, m.a. með sam­ein­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Seðla­bank­ans. Banka­kerfið sé of stórt á Íslandi fyrir hag­kerfi að þess­ari stærð og eigið fé bank­anna sé of hátt.

„Við erum komin aft­ur“

Sig­urður Ingi fjall­aði einnig um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið í ræðu sinni. Hann sagði að skoð­ana­kann­anir í nóv­em­ber 2017 hefðu sýnt að 73 pró­sent þjóð­ar­innar hafi viljað Fram­sókn í rík­is­stjórn, þangað sem flokk­ur­inn fór ásamt Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokki. Sig­urður Ingi sagði þetta sýna að lands­menn hefðu helst viljað fá Fram­sókn­ar­flokk­inn til að stýra land­inu og að það sé „ heil­brigð­is­vott­orð um heið­ar­legan flokk, skyn­sama stefnu og öfl­ugt fólk.“ Það þyrfti þó að muna að traust væri ekki gef­ið. „Það skiptir öllu hvernig við umgöng­umst vald­ið, hvernig við vinnum saman og leiðum málin til lykta. Þetta kunnum við Fram­sókn­ar­menn, þarna liggja rætur okk­ar, við erum komin aft­ur.“

Sig­urður Ingi sagði að það væri honum stór­lega til efs að hinn almenni kjós­andi væri að biðja um upp­þot á Alþingi. Kjós­endur hefðu beðið um póli­tískan stöð­ug­leika í síð­ustu kosn­ingum og frið til að byggja upp sam­fé­lag­ið. Að því vinni meiri­hlut­inn. „Það er lítil eft­ir­spurn eftir popúliskum til­burðum að fyr­ir­mynd Trumpara austan eða vestan Atl­antsála. Og engin eft­ir­spurn eftir illindum vinstri stjórn­ar­innar frá 2009-2013.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent