Hannes Smárason hættir sem forstjóri WuXI NextCODE

Hannes mun áfram starfa sem aðalráðgjafi fyrirtækisins, en hyggst sinna eigin frumkvöðlaverkefnum, að sögn erlendra fjölmiðla.

hannes smárason Hannes
Auglýsing

Hannes Smára­son er hættur sem for­stjóri WuXI NextCODE, sem hann tók þátt í að stofna og byggja upp frá árinu 2013. Hannes mun þó áfram verða aðal­ráð­gjafi fyr­ir­tæk­is­ins, sam­kvæmt skrifum Bio-ItWorld, sem er sér­hæfður vefur á sviði heil­brigð­is- og tækni­geirans.

Rob Brain­in, sem verið hefur meðal stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins, tekur við for­stjóra­hlut­verk­inu af Hann­es­i. 

Upp­bygg­ing fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið ævin­týri lík­ust. Fyrir rúm­lega þremur árum varð það til þeg­ar Kín­versk-­­banda­ríska líf­­tækn­i­­fyr­ir­tækið WuXi Pharma Tech keypti NextCODE Health, sem áður var dótt­­ur­­fé­lag Íslenskrar erfða­­grein­ing­­ar, fyrir 65 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala, eða sem nam um 8,4 millj­­örðum króna miðað við þáver­andi geng­i. 

Auglýsing



Um var að ræða ein stærstu við­skipti í íslenskum hug­bún­að­ar­geira frá upp­hafi.

Sam­einað fyr­ir­tæki ­fékk nafnið WuXi NextCODE Gen­omics og hefur verið með starf­­­semi í Kína, Banda­­­ríkj­un­um og á Ísland­i. 

Íslensk erfða­­grein­ing stofn­aði fyr­ir­tæk­ið til að selja sjúk­­­dóms­­­grein­ing­ar til lækna og sjúkra­húsa á Banda­­ríkja­­mark­að­i í gegnum hug­bún­að. 

Í sept­em­ber í fyrra var til­kynnt um að fyr­ir­tækið hefði lokið fjár­mögnun upp á 240 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 24 millj­örðum króna. 

Fyrir tæpri viku, 7. síð­ast­lið­inn, sendu WuXI og Google svo frá sér sam­eig­in­lega til­kynn­ingu þar sem greint var frá sam­starfi fyr­ir­tækj­anna. Framundan er frek­ari vöxtur og land­vinn­ingar á sviði heil­brigð­is­tækni, að því er segir í til­kynn­ingu vegna sam­starfs­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent