Breytir ferðaþjónustan sambandi krónu og viðskiptajafnaðar?

Aðalhagfræðingur Íslandsbanka fjallar um þá miklu breytingu sem orðið hefur íslenska hagkerfinu með kraftinum í ferðaþjónustunni.

ferðamenn, ferðaþjónusta, suðurland, tourism 14831009322_dc79025b21_o.jpg
Auglýsing

Íslensk ferða­þjón­usta er orðin umtals­vert dýr­ari en hún var, og sam­keppn­is­hæfni hennar hefur hrak­að. Ferða­þjón­ustan er hins vegar drif­kraft­ur­inn í hag­kerf­inu og stóð að baki 43 pró­sent heild­ar­út­flutn­ings í fyrra. 

Þetta er meðal þess sem má lesa um í ítar­legri grein eftir Jón Bjarka Bents­son, aðal­hag­fræð­ing Íslands­banka, sem birt­ist í Vís­bend­ingu sem kemur til áskrif­enda á morg­un.

Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka.Í grein­inni fjallar hann um hvernig þróun raun­gengis hefur ver­ið, og hvort sú þróun geti haft áhrif á það hvort ferða­menn heim­sæki Ísland eða ekki. „Alþjóð­legar rann­sóknir hafa leitt í ljós að breyt­ingar á raun­gengi milli heima­lands og áfanga­staðar hafa umtals­verð áhrif á eft­ir­spurn ferða­manna milli við­kom­andi landa,“ segir í grein Jóns Bjarka, og vitnar hann þar til rann­sóknar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins.



Í grein hans segir meðal ann­ars:

Auglýsing

„Und­an­far­inn ára­tug hefur sam­setn­ing útflutn­ings­tekna þjóð­ar­bús­ins tekið stakka­skipt­um. Ferða­þjón­usta, sem afl­aði um það bil fimmt­ungs útflutn­ings­tekna í upp­hafi ára­tug­ar­ins, stóð á bak við 43% heild­ar­út­flutn­ings­tekna Íslands á síð­asta ári sam­kvæmt áætlun Grein­ingar Íslands­banka. Þetta hlut­fall var á sama tíma 17% fyrir sjáv­ar­út­veg og 14% fyrir álút­flutn­ing. Að við­bættum öðrum þjón­ustu­út­flutn­ingi áætlar Grein­ing að heild­ar­út­flutn­ingur þjón­ustu hafi numið 56% af öllum útflutn­ingi þjóð­ar­bús­ins árið 2017. Horfur eru á að þetta hlut­fall hækki enn frekar á næst­unni. Þjón­ustu­út­flutn­ingur mun því vænt­an­lega skila bróð­ur­parti útflutn­ings­tekna lands­ins á kom­andi árum og ára­tug­um.

Stór­auknar gjald­eyr­is­tekjur vegna þessa hraða vaxtar ferða­þjón­ust­unnar áttu veru­legan þátt í hækkun raun­gengis krónu árin 2015-2016. Raun­gengi krónu hefur hækkað um 26% frá árinu 2015, sé miðað við hlut­falls­legt verð­lag. Hefur raun­gengið sjaldan verið hærra á þann kvarða. Á mæli­kvarða hlut­falls­legs launa­kostn­aðar nemur hækkun raun­geng­is­ins hins vegar 35% á þessu tíma­bili. Sá mæli­kvarði end­ur­speglar sam­keppn­is­hæfni ferða­þjón­ust­unn­ar, enda um mjög mann­afls­freka atvinnu­grein að ræða. Íslensk ferða­þjón­usta er því bæði orðin umtals­vert dýr­ari í þeim skiln­ingi að erlendur ferða­maður fær tals­vert minna fyrir hverja evru, dollar eða pund í Íslands­ferð sinni en áður, og að sama skapi er kostn­aður við þá þjón­ustu og vörur sem þessum sama ferða­manni standa til boða orð­inn til muna meiri en var fyrir fáeinum árum.  

Raun­gengið hefur áhrif

Mikil óvissa hefur ríkt um hvernig sam­spil raun­geng­is­ins og eft­ir­spurnar í ferða­þjón­ustu myndi þróast, enda hefur upp­gangur grein­ar­innar verið afar hraður og geng­is­breyt­ingar á sama tíma mikl­ar. Alþjóð­legar rann­sóknir hafa leitt í ljós að breyt­ingar á raun­gengi milli heima­lands og áfanga­staðar hafa umtals­verð áhrif á eft­ir­spurn ferða­manna milli við­kom­andi landa. Má þar nefna rann­sókn sér­fræð­inga Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins frá 2014, þar sem nið­ur­staðan var sú að teygni eft­ir­spurnar í ferða­mennsku milli OECD-landa gagn­vart raun­geng­is­breyt­ingum væri u.þ.b. 0,2. Það felur í sér að 10% lækkun raun­gengis til­tek­ins áfanga­staðar gagn­vart heima­lands­mynt sam­svarar að jafn­aði 2% fjölgun ferða­manna frá við­kom­andi heima­landi til þess áfanga­stað­ar. Auk þess hafði raun­gengið einnig áhrif á dval­ar­lengd sam­kvæmt sömu rann­sókn, sem jók veru­lega heild­ar­á­hrif raun­geng­is­breyt­ing­anna mælt í gistin­ótt­um. Rann­sóknin leiddi þó einnig í ljós að þessi raun­geng­is­á­hrif voru minni þegar um lítil eyríki var að ræða og tengd­ust þá fremur raun­geng­is­breyt­ingum í heima­landi ferða­manna en geng­is­breyt­ingum á áfanga­stað.“

Hér er hægt að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent