„Ódýri forstjórinn“ hjá N1 með 5,9 milljónir á mánuði

Forstjóri N1 lýsti sjálfum sér sem „ódýra forstjóranum“ þegar hann tók við starfinu. Mánaðarlaun hans hafa síðan hækkað um tæplega 60 prósent. Verkalýðsforystan fordæmir launahækkunina og krefst sambærilegra kjarabóta fyrir annað starfsfólk.

N1 collage
Auglýsing

Egg­ert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri N1, var með tæpar 5,9 millj­ónir króna á mán­uði í laun á síð­asta ári. Heild­ar­laun hans á því ári námu 70,5 millj­ónum króna og hækk­uðu um rúm­lega 12 millj­ónir króna á árinu, eða um eina milljón króna á mán­uði.

Egg­ert Þór tók við for­stjóra­starf­inu í N1 í lok febr­úar 2015. Hann hafði áður verið fjár­mála­stjóri þess. Þegar Egg­ert Þór tók við for­stjóra­starf­inu af Egg­erti Bene­dikt Guð­munds­syni, sem var sagt upp störf­um, var sú upp­sögn sögð vera liður í kostn­að­ar­lækkun N1. Egg­ert Bene­dikt hafði verið með 55,9 millj­ónir króna í laun á árinu 2014, eða tæp­lega 4,7 millj­ónir króna á mán­uði.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið í byrjun mars 2015 sagði Egg­ert Þór að það sæist í árs­skýrslu félags­ins að hann væri „ódýri for­stjór­inn“. Laun hans fyrsta árið sem hann sat í stóli for­stjóra voru lægri en laun fyr­ir­renn­ara sín.  Heild­ar­laun hans á því ári voru 43,8 millj­ónir króna, eða tæp­lega 3,7 millj­ónir króna á mán­uði. Í fyrra höfðu mán­að­ar­laun Egg­erts Þórs hins vegar hækkað um 2,2 millj­ónir króna á tveimur árum og heild­ar­laun hans á ári um 26,7 millj­ónir króna á sama tíma.

Auglýsing

Stærstu eig­endur N1 eru þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Gildi líf­eyr­is­sjóður og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins. Þá er Birta líf­eyr­is­sjóður fimmti stærsti eig­andi félags­ins.

Laun stjórn­ar­manna N1 hafa líka hækkað á þessu tíma­bili. Mar­grét Guð­munds­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður N1, var með 7,3 millj­ónir króna í laun árið 2014. Í fyrra voru heild­ar­laun hennar fyrir stjórn­ar­for­mennsk­una 8,9 millj­ónir króna og hafa því hækkað um 1,6 millj­ónir króna á nokkrum árum. Mán­að­ar­laun Mar­grétar eru 720 þús­und krón­ur.

Helgi Magn­ús­son, vara­for­maður stjórn­ar­inn­ar, er með rúm­lega 6,4 millj­ónir króna í árlegar tekjur fyrir stjórn­ar­störf­in. Hann fékk 4,8 millj­ónir króna fyrir árið 2014 og því hafa árs­laun hans hækkað um 1,6 millj­ónir króna á tíma­bil­inu.

Verka­lýðs­for­ystan for­dæmis launa­hækk­un­ina

Fregnir af launa­hækk­unum for­stjóra N1 hefur farið illa í verka­lýðs­for­yst­una. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að hann, Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, verð­andi for­maður Efl­ing­ar, Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, og Aðal­steinn Bald­urs­son, for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins Fram­sýn­ar, for­dæmi launa­hækk­anir æðstu stjórn­enda og for­stjóra N1. Laun for­stjór­ans jafn­gildi launa­töxtum 22 afgreiðslu­manna hjá N1. „N1 er að stórum hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða og því alveg ljóst að líkt og stjórn­völd ætla sam­tök atvinnu­lífs­ins og líf­eyr­is­sjóð­irnir að gefa tón­inn fyrir kom­andi kjara­við­ræð­ur. Við skorum á stjórn­endur N1 að veita starfs­fólki sínu sam­bæri­legar kjara­bætur taf­ar­laust.“



Vil­hjálmur segir í stöðu­upp­færslu á Face­book, þar sem hann tengir inn á frétt um launa­hækkun Egg­erts Þórs, að sjálf­taka og græðgi stjórn­enda íslenskra fyr­ir­tækja haldi áfram eins og engin sé morg­un­dag­ur­inn. „Rétt er að geta þess að líf­eyr­is­sjóðir launa­fólks eiga uppundir 50% í N1 og það er líka rétt að geta þess að það þarf 22 afgreiðslu­menn á launa­töxtum sem gilda fyrir afgreiðslu­fólk á bens­ín­stöðvum til að ná mán­að­ar­launum for­stjór­ans.

Ég vil tala tæpitungu­laust við full­trúa Sam­taka atvinnu­lífs­ins, stjórn­valda og for­svars­menn líf­eyr­is­sjóð­anna: þið skulið búa ykkur undir átök verka­fólks sem ekki hefur sést á íslenskum vinnu­mark­aði áður. Þetta var kornið sem stút­fyllti mæl­inn!

Að gefnu til­efni bið ég alla um að skamm­ast ekki í afgreiðslu­fólk­inu hjá N1 því þau geta alls ekk­ert gert að þessu og þeim er líka mis­boðið yfir þess­ari skefja­lausu græðgi for­stjór­ans og lyk­il­stjórn­enda eins og öðrum í þessu þjóð­fé­lag­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent