Bjarni: Sigríður stendur sterkari eftir

Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði Sigríði Á. Andersen standa sterkari á hinu pólitíska sviði, eftir að vantrausttillögu gegn henni á Alþingi var hafnað..

Bjarni_ben_2017_a.png
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í setn­ing­ar­ræðu sinni á 43. lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hófst í dag, að Sig­ríður Á. And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, stæði sterk­ari eftir í stjórn­mál­un­um, eftir að van­traust­til­laga gegn henni var felld á Alþingi.

Sagði hann í ræðu sinni, að hann vissi ekki hvort það væru von­brigði að sjá fyrr­ver­andi sam­starfs­flokk og fyrr­ver­andi flokks­fé­laga greiða atkvæði með til­lög­unni, og vís­aði þar til Við­reisn­ar. „Ég veit ekki hvort ég geti sagt að það hafi verið von­brigði að sjá fyrr­ver­andi sam­starfs­flokk og fyrr­ver­andi flokks­fé­laga okkar greiða atkvæði með fáheyrðri van­traust­s­til­lögu í síð­ustu viku, þar sem það er svo sem ekki við miklu að búast úr þeirri átt. En ég ætla samt að segja þetta: Ein­hvern tím­ann hefði for­maður þess flokks sagt að hér væri enn einu sinni vegið með ósann­gjörnum hætti að kven­kyns ráð­herra í rík­is­stjórn - kven­kyns stjórn­mála­mann­i. Það virð­ist bara ekki eiga við um Sig­ríði And­er­sen sem hefur staðið sig vel og átti mikið inni fyrir stuðn­ingi meiri­hluta Alþingis og ykk­ar. Hún stendur sterk­ari eft­ir,“ sagði Bjarni í ræðu sinni, og vitnað þar til afstöðu Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dótt­ur, fyrr­ver­andi vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nú for­manns Við­reisn­ar.

Hann hvatti flokks­menn til að standa sam­an, og sagði það hafa verið ánægju­legt að finna fyrir sam­taka­mætt­inum í flokknum síð­asta haust, fyrir kosn­ing­ar, þegar spjótin beindust að flokknum og for­ystu­fólki hans. „Það er líka ómet­an­legt að eiga ykkur að. Þessi flokkur er ein­stak­ur. Það hef ég oft upp­lif­að, en aldrei eins sterkt og í haust, þegar við sendum út herkvaðn­ingu á erf­iðum tíma. Þá sýnduð þið, fólkið okk­ar, hvers við erum megn­ug, hvernig við bregð­umst þegar að okkur er sótt. Við héldum þús­und manna fund. Eng­inn flokkur sýnir aðra eins sam­stöð­u. Með slíkan bak­hjarl er hægt að standa upp­réttur í miklum mót­vind­i,“ sagði Bjarn­i. 

Auglýsing



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent