Stærsti eigandi N1 lýsir undrun sinni á launahækkun forstjóra félagsins

Lífeyrissjóður verzlunarmanna, sem á 13,3 prósent hlut í N1, segist undrandi á því að stjórn félagsins hafi ákveðið að hækka laun forstjóra þess um eina milljón á mánuði. Sjóðurinn hafi fyrst vitað af málinu þegar upplýsingar birtust opinberlega.

N1 collage
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, sem er stærsti eig­andi hluta­fjár í N1 með 13,3 pró­sent hlut, lýsir í yfir­lýs­ingu undrun sinni á ákvörðun stjórnar N1 um launa­hækkun for­stjóra félags­ins. Sjóð­ur­inn segir að sér hafi ekki verið kunn­ugt um þessa launa­hækkun fyrr en upp­lýs­ingar birt­ust í árs­reikn­ingi félags­ins og í fjöl­miðl­um. 

„Í starfs­kjara­stefnu N1 hf. kemur fram að kjör for­stjóra skuli vera sam­keppn­is­hæf og taka mið af hæfni, ábyrgð og umfangi starfans. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn telur það orka mjög tví­mælist hvort fjár­hæð launa for­stjóra og hækkun þeirra sam­ræm­ist þessum við­miðum og þeim sjón­ar­miðum sem hlut­hafa­stefna sjóðs­ins byggir á. “

Egg­ert Þór Krist­ó­­fer­s­­son, for­­stjóri N1, var með tæpar 5,9 millj­­ónir króna á mán­uði í laun á síð­­asta ári. Heild­­ar­­laun hans á því ári námu 70,5 millj­­ónum króna og hækk­­uðu um rúm­­lega 12 millj­­ónir króna á árinu, eða um eina milljón króna á mán­uði.

Egg­ert Þór tók við for­­stjóra­­starf­inu í N1 í lok febr­­úar 2015. Hann hafði áður verið fjár­­­mála­­stjóri þess. Þegar Egg­ert Þór tók við for­­stjóra­­starf­inu af Egg­erti Bene­dikt Guð­­munds­­syni, sem var sagt upp störf­um, var sú upp­­­sögn sögð vera liður í kostn­að­­ar­­lækk­un N1. Egg­ert Bene­dikt hafði verið með 55,9 millj­­ónir króna í laun á árinu 2014, eða tæp­­lega 4,7 millj­­ónir króna á mán­uði.

Í við­tali við Við­­skipta­­blaðið í byrjun mars 2015 sagði Egg­ert Þór að það sæist í árs­­skýrslu félags­­ins að hann væri „ódýri for­­stjór­inn“. Laun hans fyrsta árið sem hann sat í stóli for­­stjóra voru lægri en laun fyr­ir­renn­­ara sín.  Heild­­ar­­laun hans á því ári voru 43,8 millj­­ónir króna, eða tæp­­lega 3,7 millj­­ónir króna á mán­uði. Í fyrra höfðu mán­að­­ar­­laun Egg­erts Þórs hins vegar hækkað um 2,2 millj­­ónir króna á tveimur árum og heild­­ar­­laun hans á ári um 26,7 millj­­ónir króna á sama tíma.

Auglýsing
Stjórn VR sendi frá sér til­kynn­ingu fyrr í dag þar sem fram kom að hún ætli að leggja fram til­­lögu á aðal­­fundi N1 um að öllum starfs­­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins skuli tryggð sama kjara­hækkun og for­­stjóri félags­­ins fékk en laun hans voru 5,8 millj­­ónir á mán­uði á síð­­asta ári og hækk­­uðu um 20,6 pró­­sent á milli ára eða um rúma milljón á mán­uði.

Til­­lagan sem stjórn VR hyggst láta leggja fram hljóðar svo: „Að­al­fundur N1, hald­inn mán­u­dag­inn 19. mars að Dal­­vegi 10-14 Kópa­vogi, ályktar að öllum starfs­­mönnum N1 skuli tryggð sama kjara­hækkun og for­­stjóri félags­­ins fékk á árinu 2017. Laun for­­stjóra voru á árinu 2017 70,4 m.kr., eða 5,8 m.kr. á mán­uði, og hækk­­uðu þau um 20,6% milli áranna 2016 og 2017.“

Stjórnin segir að þar sem stærstu eig­endur N1 séu líf­eyr­is­­sjóðir launa­­fólks hljóti það að vera eðli­­leg krafa að einmitt hið dug­­lega launa­­fólk sem þar starfi skuli einnig njóta ávaxt­anna, „sér­­stak­­lega þegar svo vel gengur í starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins að það telur sæm­andi að greiða for­­stjór­­anum sam­­bæri­­leg laun og launa­hæsta banka­­stjóra lands­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent