Gildi lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn starfskjarastefnu N1

Starfskjarastefnan var samþykkt, en með endurskoðun innan tveggja til fjögurra mánaða.

bensin olia n1
Auglýsing

Full­trúar Gild­is-líf­eyr­is­sjóðs greiddu atkvæði gegn starfs­kjara­stefnu N1 á aðal­fundi félags­ins sem hald­inn var síð­degis í dag. 

Afstaða Gildis til máls­ins var útskýrð í bókun sem full­trúar sjóðs­ins lögðu fram til afgreiðslu á fund­in­um. Til­laga, frá stétt­ar­fé­lag­inu VR, um að hækka laun allra starfs­manna um 20 pró­sent var felld á fund­in­um.

Í henni segir meðal ann­ars að það sé mat Gild­is, að launa­stefna fyr­ir­tækja þurfi að taka mið af innri rekstri fyr­ir­tækja. Orð­rétt var bókun Gildis á aðal­fundi félags­ins, sem hófst í dag klukkan 16:00, þessi: 

Auglýsing

1. Sam­kvæmt hlut­hafa­stefnu Gildis telur sjóð­ur­inn rétt við ákvörðun launa for­stjóra að líta til innri þátta félags, launa­dreif­ingar innan þess og launa sem ætla má að for­stjóra bjóð­ist á þeim mark­aði sem félagið starfar á. Í þessu sam­hengi leggur sjóð­ur­inn áherslu á heild­ar­laun. Ef félög ákveða að not­ast við árang­urstengd launa­kerfi er eðli­legt að föst laun séu að sama skapi lægri, sam­an­borið við félög þar sem slík árang­urstengd kerfi eru ekki til stað­ar.

2. Sam­kvæmt hlut­hafa­stefnu Gildis er lögð áhersla á að starfs­kjara­stefnur greini hvernig þær styðji við lang­tíma hags­muni og sjálf­bærni félaga og að sett séu fram skýr skil­yrði og for­sendur fyrir föstum og árang­urstengdum launa­greiðsl­um. Mik­il­vægt er að mæli­kvarðar séu við­eig­andi og á grund­velli þátta sem stjórn­endur geta haft áhrif á og/eða stýrt í störfum sín­um. Jafn­framt er gert ráð fyrir að greint sé frá því hversu háar árang­urstengdar launa­greiðslur geta orð­ið, þannig að hámörk og tak­mörk komi fram í stefn­unni sjálfri. Því er beint til stjórnar félags­ins að taka starfs­kjara­stefnu félags­ins til heild­ar­end­ur­skoð­unar með þessi atriði meðal ann­ars í huga.

3. Mik­il­vægt er að stjórn félags­ins rök­styðji hverju sinni starfs­kjör stjórn­enda og fjár­hæð þeirra, þ.m.t. breyti­lega launa­liði ef þeim er fyrir að fara og geri grein fyrir breyt­ingum á milli ára ásamt sund­ur­liðun á föstum og breyti­legum greiðsl­um. Af þessum sökum er mik­il­vægt að gerð sé skýrsla um fram­kvæmd starfs­kjara­stefnu og að hún sé birt með góðum fyr­ir­vara fyrir aðal­fund. Gerð er athuga­semd við að slíkum upp­lýs­ingum hafi ekki verið komið opin­ber­lega á fram­færi þegar eftir því var leitað í opin­berri umræðu und­an­farna daga. Því er beint til stjórnar félags­ins að slík skýrsla verði hér eftir birt með góðum fyr­ir­vara fyrir aðal­fund félags­ins, m.a. með hlið­sjón af þeim atriðum sem fram koma í hlut­hafa­stefnu Gild­is.“

Eins og greint var frá fyrr í dag, fjall­aði skýrsla stjórnar N1, vegna rekst­urs félags­ins í fyrra, ítar­lega um starfs­kjara­stefnu N1 en hlut­hafar N1, þar sem líf­eyr­is­sjóðir eru stærstu eig­end­ur, hafa gagn­rýnt mikið launa­skrið stjórn­enda félags­ins, þar á meðal Egg­erts Krist­ó­fers­sonar for­stjóra,  að und­an­förn­u. 

Stjórn félags­ins fjallar ítar­lega um starfs­kjara­stefnu félags­ins, í skýrslu sinni, og segir þar að hún sé að grunni til sú sama og var sam­þykkt af hlut­höfum við skrán­ingu félags á markað 2013.

Gildi er annar stærsti hlut­hafi félags­ins með 9,22 pró­sent hlut en Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærstu, með 13,3 pró­sent hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent