Ekkert mat gert á því hvort aflandseignaskýrsla varðaði almannahag

Bjarni Benediktsson segir að skýrsla um eignir Íslendinga á aflandssvæðum hafi verið unnin að sínu frumkvæði. Því hafi birting hennar verið án kvaða eða mats á því hvort þær ætti við samkvæmt siðareglum ráðherra.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Ekk­ert mat fór fram á því hvort að efni skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum varð­aði almanna­hag. Ástæða þess var sú að skýrslan var unnin að frum­kvæði Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og því var birt­ing hennar „því alger­lega án utan­að­kom­andi kvaða eða mats á því hvort þær ættu við sam­kvæmt siða­regl­u­m.“

Þetta kemur fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um birt­ingu gagna sem var birt á vef Alþingis í dag.

Sam­kvæmt siða­reglum ráð­herra á ekki að leyna upp­lýs­ingum sem varða „almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyt­i“. Í svari Bjarna kemur fram að hann telur siða­reglur ráð­herra ekki eiga við um birt­ingu skýrsl­unn­ar.

Björn Leví spurði einnig hvaða verk­lags­reglur gildi um birt­ingu gagna sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur og varða almanna­hag. Í svar­inu segir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið kapp­kosti að birta almenn­ingi „allt það efni sem því ber skylda til og annað efni sem það hefur undir höndum bæði á vef­síðu ráðu­neyt­is­ins og öðrum vefj­um, svo sem á opn­ir­reikn­ing­ar.is, rík­is­reikn­ing­ur.is og rsk.is, í frétta­til­kynn­ingum og á hvern þann hátt sem tal­inn er heppi­leg­astur hverju sinn­i.“

Skýrslan til­búin í októ­ber en ekki birt fyrr en í jan­úar

Í byrjun jan­úar 2017 var gerð opin­ber skýrsla starfs­hóps sem skoð­aði umfang aflandseigna Íslend­inga og áætl­­aði hversu miklu eig­endur slíkra eigna hefðu stungið undan skatti.

Skýrslan var unnin sem við­bragð við opin­berun Panama­skjal­anna svoköll­uðu. Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í maí 2016 að sér­stöku teymi, með aðkomu utan­­að­kom­andi sér­­fræð­inga, yrði falið að „gera mat á umfangi fjár­­­magnstil­­færslna og und­an­­skota á aflands­­svæðum sam­hliða því að áætla tekju­tap hins opin­bera af slíkri starf­­sem­i.[...]Við höfum skyldur til þess að draga fram og skýra hvert umfang skattsvikanna var. Hvert er umfang vand­ans? Hversu mikið tapast? Hversu algengt var að þetta félaga­form, þessi lönd, þessi svæði, væru nýtt til þess að skjóta sér undan íslenskum lög­­um? Það finnst mér sjálf­­sagt og eðli­­legt að kanna. Mér finnst það frum­­skylda okkar að gefnu þessu til­­efni núna að taka það út sér­­stak­­lega og verður það meg­in­verk­efni þessa sér­­staka teymis sem ég hyggst fela þetta hlut­verk þannig að við getum haft betri grund­­völl undir umræðu um umfang vand­ans.“

Auglýsing
Þessi hópur starf­aði frá vor­inu 2016 undir for­­mennsku Sig­­urðar Ing­­ólfs­­sonar hag­fræð­ings. Og hann skil­aði skýrslu til fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins í sept­­em­ber sama ár, rúmum mán­uði fyrir kosn­­ing­­arnar sem haldnar voru fyrr en áætlað var vegna aflands­­fé­laga­op­in­ber­anna Pana­ma­skjal­anna.

Skýrslan var kynnt fyrir Bjarna Bene­dikts­­syni, þáver­andi fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, í byrjun októ­ber sama ár, nokkrum vikum fyrir kosn­ingar sem fram fóru undir lok þess mán­að­ar.

Skýrslan var hins vegar ekki birt fyrr en 6. jan­ú­­ar, eftir að Kjarn­inn hafði ítrekað spurst fyrir um afdrif henn­­ar.

Svan­dís sendi skrif­lega fyr­ir­spurn til umboðs­manns

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þáver­andi þing­flokks­for­maður Vinstri grænna og núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, óskaði eftir því skrif­lega í fyrra að umboðs­­maður Alþingis myndi fjalla um hvort Bjarni hefði brotið gegn 6. grein siða­reglna ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um aflands­­fé­lög fyrr en nokkrum vikum eftir að hún lá fyr­­ir.

Umboðs­maður til­kynnti síðar um að ekki væri til­efni til að taka til athug­unar hvort Bjarni hefði brotið gegn siða­­reglum ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um eignir Íslend­inga í aflands­­fé­lögum fyrr en raun bar vitni.

Ástæðan var fyrst og fremst að Bjarni hafði við­­ur­­kennt að það hafi verið mis­­tök af hans hálfu að birta ekki skýrsl­una mun fyrr en gert var.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent