Fengu um hálfan milljarð frá Heimavöllum

Heimavellir, stærsta einkarekna leigufélag landsins sem á um tvö þúsund íbúðir, borgaði eignarhaldsfélagi um 480 milljónir króna fyrir að greina og framkvæma fjárfestingar. Á meðal eigenda félagsins er stjórnarformaður Heimavalla.

24216414821_774b5e8eb2_o.jpg
Auglýsing

Eign­ar­halds­fé­lag sem hefur séð um umsýslu fyrir Heima­velli leigu­fé­lag slhf. fékk sam­tals rúm­lega 480 millj­ónir króna á árunum 2015 til 2017 í umsýslu­tekjur vegna ráð­gjafa­starfa fyrir leigu­fé­lag­ið.

­Eign­ar­halds­fé­lag­ið, sem heitir Heima­vellir GP, er að mestu í eigu félaga í í eigu Magn­úsar Pálma Örn­ólfs­son­ar, fjár­festis og fyrr­ver­andi starfs­manns Glitn­is, Magn­úsar Magn­ús­son­ar, fjár­festis og stjórn­ar­for­manns Heima­valla, Hall­dórs Krist­jáns­son­ar, stjórn­ar­manns í Borg­un, og Sturlu Sig­hvats­son­ar, athafna­manns og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Heima­valla. Auk þess áttu Ari Edwald, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar, og Arnar Gauti Reyn­is­son, fjár­mála­stjóri Heima­valla, báðir 2,5 pró­senta hlut í félag­inu.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir að Heima­vellir GP hafi unnið að grein­ingu og fram­kvæmd fjár­fest­inga. Sam­kvæmt samn­ingi fékk félagið  hlut­falls­lega þóknun sem nam einu pró­senti af fast­eigna­mati fjár­fest­ing­ar­eigna í rekstri Heima­valla leigu­fé­lags á ári.

Eiga rúm­lega tvö þús­und íbúðir

Heima­vellir er stærsta einka­rekna leigu­fé­lag lands­ins. Til stendur að skrá það á markað á allra næstu vik­um. Í lok árs í fyrra voru eignir þess metnar á 53,6 millj­arða króna og jókst virði þeirra um 12,9 millj­arða króna á milli ára.

Auglýsing
Rekstr­ar­hagn­aður nam 2,7 millj­­örðum en var 2,2 millj­­arðar árið 2016.

Leig­u­­tekjur á árinu 2017 voru rúm­­lega þrír millj­­arð­­ar, sem er tvö­­­földun frá árinu 2016. Mats­breyt­ing á virði eigna, meðal ann­­ars vegna hækk­­andi fast­­eigna­­mats, nam 3,8 millj­­örðum króna, sam­­kvæmt til­­kynn­ingu frá félag­in­u.

Í árs­­lok í fyrra átti félagið rúm­­lega tvö þús­und íbúð­ir, en það hefur tryggt sér kaup á 340 nýjum íbúðum á þessu ári.

Vaxta­ber­andi skuldir félags­­ins eru tæp­­lega 35 millj­­arðar króna og eigið fé þess 17,6 millj­­arð­­ar. Eig­in­fjár­­hlut­­fallið er 31,4 pró­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent