Útlendingar mega sækja um styrki til Kvikmyndasjóðs en einungis íslenskar myndir fá þá

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingar á kvikmyndalögum.

Lilja Alfreðsdóttir
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp sem kveður á um breyt­ingar á kvik­mynda­lög­um. Í grein­ar­gerð þess segir m.a.: „Meg­in­efni þessa frum­varps er að kveða skýrt á um að umsækj­endur frá öðrum ríkjum EES geti sótt um styrk til Kvik­mynda­sjóðs. Jafn­framt eru sett ítar­legri skil­yrði en nú eru um að styrkur verði ein­ungis veittur vegna íslenskra kvik­mynda, kvik­mynda sem eru á íslenskri tungu eða hafa íslenska menn­ing­ar­lega eða sam­fé­lags­lega skírskot­un.“

Frum­varpið byggir á athuga­semdum frá hags­muna­að­ilum og kvik­mynda­ráði auk þess sem færa þurfti ákvæði kvik­mynda­laga til sam­ræmis við alþjóð­legar skuld­bind­ing­ar.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að mark­mið þess sé að færa fram­kvæmd úthlut­ana Kvik­mynda­sjóðs til sam­ræmis við nýjar leið­bein­andi reglur um rík­is­að­stoð til kvik­mynda og ann­arra hljóð og mynd­miðl­un­ar­verka sem eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) sam­þykkti á vor­mán­uðum 2014.

Auglýsing

Hafa ein­skorð­ast við íslenskar kvik­myndir

Þar segir en fremur að ástæða þess að ákvæði kvik­mynda­laga hafi ekki fyrr en nú verið færð til sam­ræmis við rík­is­að­stoð­ar­reglur EES sé sú að íslensk stjórn­völd hafa talið aðstoð­ar­kerfi Kvik­mynda­sjóðs vera „yf­ir­stand­andi aðstoð“ sem er aðstoð sem var hafin fyrir gild­is­töku EES-­samn­ings­ins í við­kom­andi EFTA-­ríki og er enn veitt. Kvik­mynda­sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður árið 1978, fyrir gild­is­töku EES-­samn­ings­ins, og starf­semi hans verið í óbreyttri mynd í ára­tugi. Slíkri aðstoð er ríkjum heim­ilt að við­halda en hún er engu síður háð eft­ir­liti ESA um sam­ræmi við EES-­samn­ing­inn.

Í grein­ar­gerð­inni segir síð­an: „Hingað til hafa úthlut­anir Kvik­mynda­sjóðs ein­skorð­ast við íslenskar kvik­myndir sem sam­kvæmt kvik­mynda­lögum eru kvik­myndir sem eru unnar eða kost­aðar af íslenskum aðilum eða eru sam­starfs­verk­efni íslenskra og erlendra aðila. Slíkar úthlut­anir þar sem ekki er gert ráð fyrir styrk­greiðslum til fram­leið­enda sem hafa stað­festu í öðrum EES-­ríkjum eða fela í sér aðrar beinar eða óbeinar kröfur um þjóð­erni eru ekki í sam­ræmi við leið­bein­ing­ar­reglur ESA. Þannig kemur fram í 46. mgr. leið­bein­ing­ar­regln­anna að tryggja þurfi m.a. að meg­in­regla 4. gr. EES-­samn­ings­ins sem bannar mis­munun á grund­velli þjóð­ernis sé virt við fram­kvæmd ákvæða um aðstoð til kvik­mynda­gerð­ar. Þrátt fyrir þetta er ríkj­unum heim­ilt, sbr. 24. mgr. leið­bein­ing­ar­regln­anna, að styðja sér­stak­lega við tungu­mál sem talað er á litlu mál­svæði eins og á við um íslensku. End­ur­spegla þarf með ótví­ræðum hætti í lögum rétt ein­stak­linga og lög­að­ila á grund­velli EES-­samn­ings­ins og talið er eðli­legt að gera það með því að lög­festa ákvæði um bann við mis­munun á grund­velli þjóð­ern­is.“

Engin fjár­hags­leg áhrif fyr­ir­séð

Í frum­varp­inu er líka litið til til­lagna kvik­mynda­ráðs um breyt­ingar á kvik­mynda­lögum og sam­komu­lags um stefnu­mörkun fyrir íslenska kvik­mynda­gerð árin 2016–2019. Þar er lagt til að tekin verði upp í kvik­mynda­lög ákvæði um sýn­ing­ar­styrki en 31. des­em­ber 2016 féllu úr gildi lög um styrki vegna sýn­inga á kvik­myndum á íslensku í kvik­mynda­húsum hér á landi. Þá hafa ný lög um rík­is­fjár­mál haft í för með sér breyt­ingar á skil­grein­ingu á hlut­verki for­stöðu­manna og einnig er til­laga um nýtt ákvæði um hámarks­skip­un­ar­tíma for­stöðu­manns Kvik­mynda­mið­stöðvar Íslands til sam­ræmis við t.d. skipun þjóð­leik­hús­stjóra og safn­stjóra Lista­safns Íslands. „Að lokum er brugð­ist við ábend­ingum umboðs­manns Alþingis um að setja ítar­legri reglur um störf kvik­mynda­ráð­gjafa og að gæta verði að sjón­ar­miðum um gagn­sæi og jafn­ræði um stjórn­sýslu þess­ara mála.“

Fjár­hags­leg eða efna­hags­leg áhrif eru ekki fyr­ir­séð ef frum­varpið verður að lög­um. Fjár­veit­ingar til Kvik­mynda­mið­stöðvar Íslands og Kvik­mynda­sjóðs eru veittar í fjár­lögum og því hafa þær breyt­ingar á stöðu umsækj­enda frá öðrum ríkjum innan EES-­svæð­is­ins, sem frum­varpið felur í sér, engin áhrif á útgjöld rík­is­ins í mála­flokkn­um. „Er­lendir rík­is­borg­arar frá ríkjum EES-­svæð­is­ins hafa sótt um styrki úr Kvik­mynda­sjóði en slík til­vik eru svo fá að þau hafa ekki haft áhrif á mögu­leika íslenskra rík­is­borg­ara til að fá styrki að nokkru nemi auk þess sem rétt­indi rík­is­borg­ara EES-­ríkja eru gagn­kvæm. Af þeim sökum er hér talið að ekki verði nein mæl­an­leg áhrif á styrk­veit­ingar úr Kvik­mynda­sjóði þótt ákvæði þessa frum­varps verði að lög­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent