Íslensk náttúra komin að þolmörkum - Þjónusta þarf að batna

Í skýrslu um þolmörk í ferðaþjónustunni segir að rannsóknir hafi sýnt, um langt árabil, að víða sé komið að þolmörkum þegar kemur að ágangi á ferðamannastöðum.

7DM_0410_raw_2101.JPG
Auglýsing

Rann­sóknir haf sýnt, í næstum tvo ára­tugi, að margir vin­sælir ferða­manna­staðir í íslenskri nátt­úru hafa lengi verið undir of miklu álagi og liggja við skemmd­um. 

Í skýrslu Þór­dísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­un­ar, er fjallað ítar­lega um stöðu ferða­þjón­ust­unnar í land­inu, og þá ekki síst hvað rann­sóknir sýni, þegar kemur að við­horfi ferða­manna til Íslands sem áfanga­stað­ar.

Íslensk nátt­úra er það sem dregur ferða­menn til Íslands, að miklu leyti, og segir í skýrsl­unni vís­bend­ingar séu uppi um það, að nátt­úran sé víða fótum troð­in. „Það er ein­kenn­andi fyrir nið­ur­stöður hversu við­kvæm íslensk nátt­úra er og hversu illa hún virð­ist þola umferð ferða­manna. Sterkar vís­bend­ingar eru um að nátt­úran sé veikast­i hlekk­ur­inn í keðj­unni. Strax um alda­mótin 2000 var þol­mörkum hennar náð í Skafta­felli, á Lónsör­æfum og í Land­manna­laugum þegar umferð ferða­manna var til­tölu­lega lítil miðað við það sem nú er. Alls staðar þar sem þol­mörk nátt­úr­unnar voru rann­sökuð var þol­mörkum náð. Þónokkur frið­lýst svæði og nátt­úru­vætti eru á válista Umhverf­is­stofn­unar yfir svæði í hætt­u ­vegna álags ferða­manna. ­Rann­sóknir á þol­mörkum nátt­úr­unnar hafa m.a. sýnt fram á að gróð­ur­lendi Íslands er mis­á­l­ags­þolið gagn­vart umferð ferða­manna. Gras­lendi er harð­gerð­ast en mos­lendi er við- ­kvæm­asta gróð­ur­lend­ið. Upp­lýs­ingar af þessu tagi ber að hafa í huga við skipu­lag og ­stjórnun ferða­manna­staða,“ segir í skýrslu ráð­herra.

Auglýsing

Þá er fjallað um það sér­stak­lega, að rann­sóknir sýni að mikið svig­rúm sé til þess að bæta þjón­ustu, og birt­ist það meðal ann­ars í við­horfskönn­unum ferða­manna.

Það var þing­flokkur Vinstri grænna sem kall­aði eftir skýrslu ráð­herra um þol­mörkin í ferða­þjón­ust­unni. Eins og marg hefur verið fjallað um þá hefur vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni á Íslandi leitt til alls konar hlið­ar­á­hrifa í sam­fé­lag­inu, sem kalla mætti vaxt­ar­verki. Fjöldi ferða­manna á ári hefur farið úr 450 þús­und árið 2010 í 2,3 millj­ónir í fyrra, og er búist við því að þeim haldi áfram að fjölga, þó hlut­falls­lega muni hægja nokkuð á vext­inum miðað við und­an­farin ár. 

Nýlega kynntu íslensk stjórn­völd áform um stór­fellda upp­bygg­ingu og fjár­fest­ingar á ferða­manna­stöð­um, vítt og breitt um land­ið. Sam­tals voru það fjár­fest­ingar upp á 2,8 millj­arða króna

Í skýrsl­unni er vöxt­ur­inn á Íslandi settur í alþjóð­legt sam­hengi, og rætt um að hann væri búinn að vera langt yfir alþjóð­legu með­al­tali und­an­farin ár. Samt sem áður er talið að ferða­þjón­usta muni vaxa hratt og mikið á næstu árum á alþjóða­vísu, þar sem fólk sækir ein­fald­lega meira í að ferð­ast en áður. Vax­andi kaup­máttur hjá stórum hóp­um, ekki síst í Asíu, hefur ýtt undir enn meira mik­il­vægi ferða­þjón­ust­unnar í heim­in­um. „Allt bendir til þess að ferða­mönnum haldi áfram að fjölga á heims­vísu næstu ár. Ferða­mála­stofn­un ­Sam­ein­uðu þjóð­anna spáir áfram­hald­andi vexti í alþjóð­legum ferða­lögum árið 2018 miðað við 2017 eða um 4–5%.17 Lang­tíma­spá stofn­un­ar­innar gerir ráð fyrir því að árleg­ur vöxtur verði að með­al­tali um 3,3% fram til árs­ins 2030 og að fjöldi manna sem ferð­is­t ­yfir landa­mæri verði um 1,8 millj­arðar það ár,“ segir í skýrsl­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent