Tveir klassískir íslenskir valdaflokkar undir forystu sósíalista og konu

Svandís Svavarsdóttir segist ekki finna fyrir valdbeitingu af hendi samstarfsflokkanna. Hún segir „ótrúlegt afl“ fólgið í því að vera með Katrínu Jakobsdóttur við borðsendann á ríkisstjórnarborðinu. Það tryggi Vinstri grænum lykilstöðu í ríkisstjórn.

Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir að það efi gagn­vart stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokknum sé í inn­yfl­unum á sér. Hún hafi því þurft að eiga í innri samn­inga­við­ræðum við sig þegar verið var að mynda sitj­andi rík­is­stjórn. „Ég taldi mjög mik­il­vægt að við myndum reyna að tefla þetta þannig að við næðum lyk­il­stöðu í rík­is­stjórn. Það er ótrú­legt afl í því að vera með Katrínu Jak­obs­dóttur við borð­send­ann og finna fyrir þeim krafti sem þar er. Vegna þess að áskor­unin er svo mik­il. Við erum með þessa  klass­ísku tvo íslensku valda­flokka við borð­ið. En undir for­ystu konu og sós­í­alista. Það passar ekki inn í neina umræðum um póli­tískar grein­ingar á Íslandi. Maður finnur fyrir því að allir sem eru að reyna að greina stöð­una þeir þurfa að leita út fyrir sínar hefð­bundnu orða­bækur í því hvernig maður talar um póli­tík.“

Þetta er meðal þess sem fram kom í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut sem frum­sýndur var síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Finnur ekki fyrir vald­beit­ingu

Þegar Vinstri græn ákváðu að fara í stjórn­ar­sam­starfið þá fór það mjög öfugt ofan í suma flokks­menn. Þeirra á meðal var Drífa Snædal, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri flokks­ins og lyk­il­­mann­eskja í upp­­­bygg­ingu hans, sem sagði sig úr honum vegna þess. Drífa sagði við það til­efni að óum­flýj­an­­legt væri að Vinstri græn myndu verða í þeirri stöðu að verja sam­­starfs­­flokk­inn og mörkin myndu sífellt fær­­ast til í sam­­starf­inu líkt og í ofbeld­is­­sam­­bandi. „Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjör­­tíma­bil, ef stjórnin end­ist svo leng­i,“ sagði Drífa.

Auglýsing

Svan­dís seg­ist hins vegar ekki finna fyrir vald­beit­ing­ar­til­burðum af hendi sam­starfs­flokk­anna. „Ég held að það sé afar mik­il­vægt í rík­is­stjórnum alltaf að fólk tali mikið sam­an. Og ég held að það hafi kannski verið það sem kláraði síð­ustu rík­is­stjórn að fólk gleymdi því að tala saman fyrr en allt var komið í steik. Og hafði þá ekki farið í gegnum hlut­ina með nægi­lega afger­andi hætti. Þessi rík­is­stjórn byggir á ákveðnum sam­eig­in­legum skiln­ingi á því hvert verk­efnið er og það er ákveðið traust sem er fólgið í því. Það er líka sam­eig­in­legur skiln­ingur á því að við erum ósam­mála um til­tekin grund­vall­ar­at­riði. Það bara liggur og er bara þar. Um það verður ekki deilt.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent