Vilja að Alþingi biðjist afsökunar á landsdómsmálinu

Þingmenn úr þremur flokkum vilja að Alþingi viðurkenni að óréttmætt hafi verið að höfða mál á hendur Geir H. Haarde og vilja að þingið biðji hann afsökunar. Fyrsti flutningsmaður er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Auglýsing

15 þing­menn úr Mið­flokki, Flokki fólks­ins og Sjálf­stæð­is­flokki hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um um órétt­mæti máls­höfð­unar Alþingis gegn ráð­herrum og afsök­un­ar­beiðni. Í henni felst að þing­menn­irnir vilja að Alþingi álykti að „rangt hafi verið að leggja fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um máls­höfðun gegn ráð­herrum hinn 28. sept­em­ber 2010 [...] Við­kom­andi ráð­herrar verð­s­kuldi afsök­un­ar­beiðni vegna þessa.“

Sú þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem um ræðir var um að höfða bæri saka­mál á hendur Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vegna refsi­verðrar hátt­semi hans í emb­ætt­is­færslum á árinu 2008. Hún var sam­þykkt með 33 atkvæðum gegn 30 í sept­em­ber 2010.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, en á meðal flutn­ings­manna eru sex þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Einn þeirra er úr for­ystu­sveit flokks­ins, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir. Á meðal þeirra sem sam­þykktu ákæruna á hendur Geir í þing­inu í sept­em­ber 2010 voru nokkrir ráð­herrar sem nú sitja í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Þeir eru atrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Sig­urður Ingi Jóhanns­son, Svan­dís Svav­ars­dóttir og Ásmundur Einar Daða­son. Þau kaus Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, einnig með ákærunni.

Auglýsing

Póli­tískt hita­mál

Rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í skýrslu sinni sem birt var í apríl 2010 að nokkrir íslenskir ráð­herrar hefðu sýnt af sér van­rækslu í starfi í aðdrag­anda hruns­ins. Þing­­manna­­nefnd sem skipuð var til að fjalla um skýrsl­una komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í sept­­em­ber 2010 að ákæra ætti fjóra fyrr­ver­andi ráð­herra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ing­i­­björgu Sól­­rúnu Gísla­dóttur og Björg­vin G. Sig­­urðs­­son, fyrir Lands­­dómi vegna þess­­arar van­rækslu.

Þegar alþing­is­­menn kusu um málið varð nið­­ur­­staðan hins vegar sú að ein­ungis Geir var kærð­­ur. Nokkrir þing­­menn Sam­­fylk­ingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráð­herrum Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins en hlífa sínum flokks­­mönn­­um.

Lands­­dóms­­mál­inu lauk með því að Geir var fund­inn sekur um einn ákæru­lið en þeir voru upp­­haf­­lega sex. Honum var ekki gerð refs­ing. Geir kærði máls­­með­­­ferð­ina til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu. Það mál tap­að­ist í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um.

Skipu­lagt eftir flokkspóli­tískum línum

Í grein­ar­gerð sem fylgir með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni segir m.a. að rang­lega hafi verið staðið að atkvæða­greiðslu um til­lög­una um að ákæra Geir og að rangt hafi verið að sam­þykkja hana.

„Al­þingi álykti enn fremur að þeir fyrr­ver­andi ráð­herrar sem upp­haf­lega þings­á­lykt­un­ar­til­lagan beind­ist gegn, og sá ráð­herra sem loks var ákveðið að höfða mál gegn[...] verð­s­kuldi afsök­un­ar­beiðni frá hlut­að­eig­andi aðil­um.

Flutn­ings­menn segja að nið­ur­staða lands­dóms hafi sýnt að ekki hafi verið til­efni til ákæru, að ekki hefði verið gætt sam­ræmis við beit­ingu laga um lands­dóm þar sem lög­unum hefur ekki verið beitt í öðrum til­vikum er varða stjórn­mála­legar ákvarð­anir og aðgerðir sem stefnt hafa hags­munum rík­is­ins í hættu, að atkvæða­greiðsla um máls­höfðun hafi borið þess merki þess að nið­ur­staða um það hverja skyldi ákæra „hefði ann­að­hvort verið til­vilj­ana­kennd eða skipu­lögð eftir flokkspóli­tískum lín­um“,  og að lýð­ræð­is­legu stjórn­ar­fari lands­ins standi ógn af því ef reynt sé að fá starf­andi eða fyrr­ver­andi stjórn­mála­menn dæmda til fang­els­is­vistar vegna póli­tískra aðgerða eða aðgerða­leysis „án þess að um hafi verið að ræða ásetn­ing um brot“. Ýmsar stjórn­mála­legar stefnur og ákvarð­an­ir, eða aðgerða­leysi, geti verið skað­legar hags­munum rík­is­ins án þess að ætl­unin hafi verið að valda tjóni. Slíkt álita­mál beri að leiða til lykta í kosn­ingum en ekki fyrir dóm­stól­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent