Ólíðandi að horfa upp á hækkanir stjórnenda Ísavia

Tugprósenta hækkanir stjórnenda hjá ríkinu og dótturfélögum ríkisins hafa fallið í grýttan jarðveg hjá stéttarfélögum.

Isavia
Auglýsing

Unnar Örn Ólafs­son, for­maður FFR (Fé­lags flug­mála­starfs­manna rík­is­ins), segir það ólíð­andi að launa­skrið hjá stjórn­endum Isa­via, dótt­ur­fé­lagi íslenska rík­is­ins, sé stað­reynd á sama tíma og kröfur séu uppi um að fólkið á gólf­inu fá litla launa­hækk­un. „Það er ólíð­andi að horfa upp á launa­hækk­anir stjórn­enda taka tug­pró­senta hækk­unum á milli ára á meðan almenn­ingur þarf að sætta sig við sín 1-3%. Ef stjórn­endur vilja að starfs­fólk þeirra stilli kröfum sínum í hóf verða þeir sömu­leiðis að læra þá list,“ segir Unnar Örn í orð­send­ingu til félags­manna.

Á nýliðnum aðal­fundi Isa­via gerði Björn Óli Hauks­son, for­stjóri, stöð­una á vinnu­mark­aði að umtals­efni, og sagði þar að staðan á vinnu­mark­aði væri um margt áhyggju­efni. Unnar Örn segir í orð­send­ingu sinni: „Kröf­urnar væru of miklar og stefndu fram­kvæmdum við Kefla­vík­ur­flug­völl í hættu. Á þessum sama fundi kom fram í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins að laun og þókn­anir stjórn­enda Isa­via hefðu hækkað um tæp 15% á milli ára. Kjarn­inn varpar síðan ljósi á hvernig þessi hækkun skipt­ist á milli stjórn­enda og kemur þá í ljós að áhyggju­fullur for­stjóri Isa­via, hefur fengið 20% launa­hækkun á milli áraStjórn FFR (Fé­lags flug­mála­starfs­manna rík­is­ins) vill því koma eft­ir­far­andi vanga­veltum á fram­færi til for­stjóra Isa­vi­a: Þykir honum for­svar­an­legt að þiggja 20% launa­hækkun á sama tíma og hann biður hinn almenna starfs­mann Isa­via um að stilla sínum kröfum í hóf? Má hinn almenni starfs­maður gera ráð fyrir sam­bæri­legum launa­hækk­un­um? Er 20% hækkun launa hóf­leg krafa að mati for­stjóra Isa­via? Ef svarið við þessum spurn­ingum er nei, viljum við gjarnan fá svar við því hvernig Björn Óli ætl­ast til þess að stjórn FFR sann­færi sína félags­menn um að stilla kröfum sínum í hóf á sama tíma og hann þiggur sjálfur 20% launa­hækkun á einu ári?“ segir í orð­send­ing­unni.



Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent