Rósa: Trúi því varla að við séum að horfa upp á aðför að kvennastétt

Rósa Björk Brynjólfsdóttir segist varla trúa því, að það sé enn verið að horfa upp á kerfislægt misrétti sem bitni á kvennastéttum í heilbrigðisgeiranum. Hún hvetur stjórnvöld til að semja við ljósmæður.

7DM_0542_raw_2167.JPG
Auglýsing

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, segir það blasa við, að það sé full­kom­lega óeðli­egt að ljós­mæður lækki í launum við það að bæta við sig tveggja ára háskóla­námi, eftir að hafa lokið námi í hjúkr­un­ar­fræð­i. 

Þetta kom fram í þing­ræðu hennar í dag, þar sem rætt var um stöð­una í kjara­við­ræðum ljós­mæðra og rík­is­ins. Eins og fram hefur kom­ið, þá hefur lítið sem ekk­ert þok­ast í þeim deilum að und­an­förnu og hefur ríkið ekki verið til­búið að fall­ast á kröfu ljós­mæðra um launa­hækk­un. „Það blasir við öllum sem það vilja sjá að full­kom­lega óeðli­legt er að ljós­mæður lækki í launum við það að bæta við sig tveggja ára ströngu háskóla­námi ofan á hjúkr­un­ar­fræði­nám. Próf í hjúkr­un­ar­fræði er meðal inn­töku­skil­yrða í grein­ina, en ákveði hjúkr­un­ar­fræð­ingur að bæta við sig prófi í ljós­móð­ur­fræði gæti við­kom­andi þurft að taka á sig launa­lækkun í starfi ljós­móð­ur,“ sagði Rósa meðal ann­ars, og hvatti fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son, til að semja við ljós­mæð­ur. „Hversu langt er seilst í því að spara rík­inu krónu með því að láta kvenna­stétt enn eitt skiptið taka á sig skell­inn. Ljós­mæður upp­skera ekki laun í sam­ræmi við erf­iði sitt. Ljós­mæður eru orðnar lang­eygar eftir við­ur­kenn­ingu á sínum mik­il­vægu störf­um, enda ekki að furða því að ein­ungis eru tæp tvö ár síðan þær fóru í 10 vikna verk­fall. Þær unnu þó vinn­una sína í því verk­falli en var neitað um greidd laun fyrir þá vinnu. Í stað­inn fyrir að fara í verk­fall núna hafa ljós­mæður boðað upp­sagnir og eru þær nú orðnar um 30,“ sagði Rósa.

Eins og greint var frá í dag, þá áttu Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, heil­brigð­is­ráð­herra, og síðan stétt­ar­fé­lög ljós­mæðra ásamt BHM, í skeyta­send­ingum vegna umræðu um stöðu kjara­við­ræðna. Svan­dís hafn­aði því sem fram kom í fyrri yfir­lýs­ingu frá ljós­mæðrum, og sagði það „óskilj­an­leg og til­efn­is­laust“ að hún hafi verið að tala fyrir því að ljós­mæður gætu sjálfum sér um kennt að hafa lækkað í launum með því að bæta við sig námi til ljós­móð­ur. Hún sagði það af og frá, að hún hefði sagt eitt­hvað í þessa veru, og sagð­ist styðja ljós­mæð­ur.

Auglýsing

Rósa sagði í meðal ann­ars í ræðu sinni, að hún trúði því varla að enn einu sinni væri verið að horfa upp á kerf­is­lægt kynja­mis­rétti. „Ég trúi því varla að við séum í enn eitt skiptið að horfa upp á aðför að kvenna­stétt í heil­brigð­is­kerf­inu. Ég trúi því varla að við séum að sjá í enn eitt skiptið skýrasta form kerf­is­lægs kynja­mis­réttis í sam­fé­lagi okk­ar, sam­fé­lagi sem ber sér stöðugt á brjóst fyrir að vera meist­ara­sam­fé­lag þegar kemur að jafn­rétti kynj­anna. Það er brýnt að fjár­mála­ráð­herra, sem ber ábyrgð á kjara­við­ræðum við ljós­mæður fyrir hönd íslenska rík­is­ins, gangi til samn­inga við ljós­mæður hið fyrsta og að heil­brigð­is­ráð­herra, sem hefur borið hag kvenna­stétta fyrir brjósti, stuðli að lausn mála þannig að ljós­mæður gangi sáttar frá samn­inga­borð­inu. Þær eiga það sann­ar­lega skilið frá okkur öll­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent