Fasteignamarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar

Verulega hefur dregið úr verðhækkunum á fasteignamarkaði að undanförnu og lækkaði verðið um 0,1 prósent í marsmánuði.

Fasteignir hús
Auglýsing

Raun­hækkun á íbúð­um, þ.e. hækkun á virði að teknu til­liti til verð­lags, nemur nú um 4,8 pró­sentum á árs­grund­velli, sam­kvæmt nýjum tölum Þjóð­skrár Íslands. Lækkun á verði íbúða mæld­ist í mars 0,1 pró­sent.

Verð á sér­býli lækk­aði um 1,1 pró­sent milli mán­aða, en fjöl­býli hækk­aði um 0,2 pró­sent. Sé horft til síð­ustu þriggja mán­aða hefur verð­ið, að nafn­virði, hækkað um 1,4 pró­sent en und­an­farið hálft ár nemur hækk­unin 1,1 pró­sent.

Segja má að fjög­urra ára tíma­bili mik­illla verð­hækk­ana sé lokið í bili, sé miðað þessar nýj­ustu töl­ur. Ekki er langt síðan að spár birt­ust sem gerðu ráð fyrir meiri hækk­unum á fast­eigna­verði. Meðal ann­ars gerir spá Íslands­banka ráð fyrir að fast­eigna­verða hækki um rúm­lega 12 pró­sent á þessu ári. Eins og mál standa nú, er ólík­legt að sú spá gangi eft­ir.

Auglýsing

Dregið hefur úr hækkun fasteignaverðs, en það hækkar þó enn. Mynd: ÍLS.

Aðrar spár hafa gert ráð fyrir minni hækk­un, eða um sjö pró­sent, en eins og áður segir þá hefur raun­verðið und­an­farið ár hækkað um 4,8 pró­sent.

Þrátt fyrir að það sé farið að hægja á verð­hækk­un­um, þá benda flestar grein­ingar til þess að langt sé í að það náist jafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar á næstu árum. 

Mikil vöntun er á íbúðum á mark­að, einkum litlum og með­al­stórum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en víða í minni sveit­ar­fé­lögum á lands­byggð­inni vantar einnig eign­ir.

Eins og sést á þessari mynd, þá hefur landsmönnum fjölgað hratt og aðfluttir umfram brottflutta voru nærri fjögur þúsund á síðasta ári.Á næstu þremur árum er gert ráð fyrir að það þurfi að minnsta kosti að koma um 10 þús­und nýjum íbúðum út á mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, til að mæta eft­ir­spurn­inni, ekki síst vegna mik­illar fólks­fjölg­un­ar. 

Hins vegar hefur verðið hækkað veru­lega hratt og á árunum 2015 til 2017 voru engin dæmi í þró­uðum ríkjum í heim­inum um jafn mikla hækkun á fast­eigna­verði, en frá því í maí 2016 til maí 2017 þá hækk­aði verðið um 24 pró­sent í krónum talið. Sé miðað við verð­þróun í Banda­ríkja­dal, þá hækk­aði verðið um meira en 50 pró­sent, þar sem krónan styrkt­ist hratt á þessu tíma­bili gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um.

Veru­lega hefur dregið úr þessu verð­hækkana­ferli, eins og áður seg­ir. Fyrir næsta ár gera spár grein­enda á fjár­mála­mark­aði ráð fyrir 4 til 5 pró­sent hækkun fast­eigna­verðs, og að verð­bólga taki að hækka nokkuð en hún hefur hald­ist niðri á und­an­förnum fjórum árum og undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið­inu. Hún mælist nú 2,8 pró­sent og fór í fyrsta skipti í fjögur ár yfir verð­bólgu­mark­miðið í síð­asta mán­uði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent