„Birgitta kemur hlutum af stað og fer“

Þingmaður Pírata segir að unnið hafi verið að því árum saman að gera flokkinn stjórntækan. Afleiðing þeirrar vinnu sé sú að Píratar líti nú út eins og stjórnmálaflokkur.

Björn Leví Gunnarsson
Auglýsing

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir að nær allan tím­ann sem flokk­ur­inn hefur verið á þingi hafi verið unnið að því innan hans að gera flokk­inn stjórn­tæk­an. Afleið­ingin sé sú að Píratar líti út eins og stjórn­mála­flokk­ur.

Hann segir Pírata þrátt fyrir það vera að breyta stjórn­mál­unum og séu ekki gam­al­dags­stjórn­mála­flokk­ur. „Leiðin framundan er eitt­hvað nýtt og Píratar eru að draga þann vagn. Aðrir eru að fylgja. Þess vegna sýn­ist kannski líka vera minni mun­ur.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Björn Leví birtir á Face­book. Til­efnið er við­tal við Birgittu Jóns­dótt­ur, einn af stofn­endum og fyrr­ver­andi kaftein Pírata, í Reykja­vík Grapevine þar sem hún útskýrir að ein af ástæð­unum fyrir því að hún hætti í flokknum sé sú að hann hafi breyst úr hreyf­ingu í stjórn­mála­flokk.

"One of the rea­sons why I left the Pirate Party is it was incr­e­asingly feel­ing like a polit­ical par­ty, and incr­e­asingly...

Posted by Björn Leví Gunn­ars­son on Sat­ur­day, April 21, 2018

Björn Leví segir í stöðu­upp­færsl­unni að Birgitta komi „hlutum af stað og fer“. Mark­mið hennar hafi verið að koma Pírötum af stað og gera flokk­inn stjórn­tæk­an. „Það tókst. Afleið­ingin er jú að Píratar líta út fyrir að vera stjórn­mála­flokk­ur. Við erum hins vegar að breyta stjórn­mál­un­um, þannig að það er amk. ekki hægt að segja að Píratar séu gam­al­dags stjórn­mála­flokk­ur. Leiðin framundan er eitt­hvað nýtt og Píratar eru að draga þann vagn. Aðrir eru að fylgja. Þess vegna sýn­ist kannski líka vera minni mun­ur.“

Auglýsing
Í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun apríl sagði Birgitta að hún hafi farið inn á Alþingi fyrst fyrir átta árum með vænt­ingar um raun­veru­­legar breyt­ingar á sam­­fé­lag­inu eftir hrun­ið. „Ég lét mig dreyma um aðkomu almenn­ings að mál­um, nýja stjórn­­­ar­­skrá og ein­hverjar raun­veru­­legar breyt­ingar þannig að þeir sem fara með völdin axli ábyrgð þegar þeir klúðra ein­hverju. Ekk­ert af þessu hefur gengið eft­­ir.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent