Gunnar Bragi kjörinn varaformaður Miðflokksins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur verið endurkjörinn formaður flokksins sem stofnaður var utan um hann og helstu stefnumál hans.

Formaður og nýr varaformaður Miðflokksins.
Formaður og nýr varaformaður Miðflokksins.
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður og stofn­andi Mið­flokks­ins, var í dag end­ur­kjör­inn for­maður flokks­ins á fyrsta lands­þingi hans með öllum greiddum atkvæð­um. Hann var einn í fram­boði.

Gunnar Bragi Sveins­son, sem fylgdi Sig­mundi Davíð úr Fram­sókn­ar­flokknum og yfir í Mið­flokk­inn, og er nú þing­flokks­for­maður hans, var kjör­inn fyrsti vara­for­maður flokks­ins. Hann atti kappi við Birgi Þór­ar­ins­son, þing­mann Mið­flokks­ins, um emb­ættið en Gunnar Bragi til­kynnti um fram­boð sitt skömmu áður en lands­þingið hófst.

Anna Kol­brún Árna­dóttir var kjörin annar vara­for­maður Mið­flokks­ins.

Auglýsing

Mið­flokk­ur­inn var stofn­aður skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar eftir að Sig­mundur Dav­íð, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra frá 2013 til 2016, ákvað að yfir­gefa Fram­sókn­ar­flokk­inn eftir miklar inn­an­flokks­deil­ur. Mið­flokknum gekk vel í kosn­ing­unum 2016 og fékk 10,9 pró­sent atkvæða, sem er það mesta sem nýtt fram­boð hefur nokkru sinni fengið í fyrstu kosn­ingum sín­um.

Vilja RÚV af fjár­lögum

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að Mið­­flokk­­ur­inn vilji að RÚV verði tekið af fjár­­lögum og að rík­­is­­fjöl­mið­ill­inn fjár­­­magni sig ein­vörð­ungu með áskrift­­ar­­sölu og á aug­lýs­inga­­mark­aði. Þá vill flokk­­ur­inn einnig að virð­is­auka­skattur á áskriftum fjöl­miðla verði afn­um­in. Þetta er meðal þess sem kemur fram í lands­fund­­ar­á­­lykt­unum flokks­ins.

Flokk­­ur­inn vill auk þess að lög­­­reglu­­mönnum verði fjölgað út um allt land, að reglu­verk atvinn­u­lífs­ins verði ein­faldað og að lagt verði áherslu á upp­­­bygg­ingu hug­vits­­greina. Mið­­flokk­­ur­inn vill taf­­ar­­laust afnema skerð­ingar líf­eyris krónu á móti krónu, setja þak á vexti af nýjum verð­­tryggðum lán­um, taka hús­næð­islið­inn út úr neyslu­­vísi­­töl­unni og heim­ila áfram að nýta sér­­­eigna­­sparnað til að greiða inn á hús­næð­is­lán.

Mið­flokk­ur­inn leggur sér­­staka áherslu á end­­ur­­skipu­lagn­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins. Í álykt­un­inni segir að ljúka skuli „end­­ur­­skipu­lagn­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins með það að mark­miði að lækka vexti og laga kerfið að þörfum fólks og fyr­ir­tækja. Bank­­arnir verði minn­k­aðir með því að greiða úr þeim umfram eigið fé í rík­­is­­sjóð. Lands­­bank­inn verði lát­inn leiða þá vinnu þar sem m.a. verði stofn­aður nýr hag­­kvæmur net­­banki sem láni til ein­stak­l­inga og fyr­ir­tækja á bestu kjör­u­m.“

Þá vill flokk­­ur­inn að Fjár­­­mála­eft­ir­litið verði sam­einað Seðla­­bank­­anum og að almenn­ingi verði færður hlutur í banka í eigu rík­­is­ins, en það var helsta kosn­­inga­lof­orð Mið­­flokks­ins fyrir kosn­­ing­­arnar 2017.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent