Ríkið dæmt til að greiða Hreiðari Má miskabætur

Íslenska ríkinu hefur verið gert að greiða Hreiðari Má Sigurðssyni fyrrverandi forstjóra Kaupþings 300 þúsund krónur í miskabætur auk dráttarvaxta vegna hlerana sem fram fóru á síma hans.

Hreiðar Már
Auglýsing

Íslenska rík­inu hefur verið gert að greiða Hreið­ari Má Sig­urðs­syni fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings 300 þús­und krónur í miska­bætur auk drátt­ar­vaxta vegna hler­ana sem fram fóru á síma hans sam­kvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem kveð­inn var upp í dag.

Hreiðar höfð­aði einka­mál gegn rík­inu vegna ólög­mætra hler­ana og órétt­látrar máls­með­ferðar og fór hann fram á 10 millj­ónir í bæt­ur.

Hreiðar byggði kröfu sína á nokkrum máls­á­stæð­um. Í fyrsta lagi á því að úrskurð­irnir hafi verið kveðnir upp á röngu varn­ar­þingi. Í öðru lagi á því að úrskurður hafi verið kveð­inn upp á heim­ili dóm­ara og án þess að skrif­leg beiðni lægi fyr­ir. Í þriðja lagi á því að efn­is­leg skil­yrði síma­hlust­unar hafi ekki verið upp­fyllt þegar heim­ildir hafi verið veittar á grund­velli óskýrra laga­heim­ilda. Í fjórða lagi á því að með úrskurð­unum og eft­ir­far­andi hlust­unum hafi að engu verið hafður réttur stefn­anda sem sak­born­ings til að neita að tjá sig um sak­ar­efni. Loks byggði hann á því að hlustað hafi verið á og ekki eytt jafn­harðan sam­tölum sem hann hafi átt við verj­anda sinn.

Auglýsing

Í nið­ur­stöðu dóms­ins kemur fram að sím­hlustun lög­reglu sem hófst skömmu eftir að Hreið­ari hafði verið kynnt rétt­ar­staða sak­born­ings við yfir­heyrslu vegna þeirra brota sem lágu sím­hlust­un­inni til grund­vallar hafi brotið gegn rétti hans til rétt­látrar máls­með­ferðar sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu. Öðrum máls­á­stæðum var hafn­að.

Fall­ist var á kröfu rík­is­ins um að máls­kostn­aður sé felldur nið­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent