FME gerði athugasemdir við starfsemi Stefnis

FME gerði athugun á áhættustýringu Stefnis, dótturfélagi Arion banka.

Arion banki
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) gerði athuga­semd við að rekstr­ar­samn­ingur Stefnis hf. við „til­tekið félag“, eins og orð­rétt segir í til­kynn­ingu FME, sam­ræmd­ist ekki starfs­heim­ildum félags­ins sam­kvæmt 27. gr. laga nr. 161/2002 um fjár­mála­fyr­ir­tæki. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá FME. 

Stefnir er dótt­ur­fé­lag Arion banka og er með um 300 millj­arða króna í eigna­stýr­ingu.

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að starfs­heim­ildir rekstr­ar­fé­laga séu tæm­andi taldar í lögum og „fellur bein aðild ­Stefnis hf. að slíkum rekstr­ar­samn­ingi ekki þar inn­an.“

FME taldi að áhættu­stýr­ing­ar­stefna Stefnis hf. upp­fyllti ekki að fullu ákvæði 6. kafla ­reglu­gerðar nr. 471/2014 og gerði athuga­semd við að í stefn­una vant­aði ítar­legri skil­grein­ing­ar og umfjöllun um nokkrar teg­undir áhættu, að því er segir í til­kynn­ingu FME. 

Fjár­mála­eft­ir­litið hóf athugun á til­greindum þáttum áhættu­stýr­ingar hjá Stefni hf., sem hef­ur ­starfs­leyfi sem rekstr­ar­fé­lag verð­bréfa­sjóða, í októ­ber 2017. 

Mark­mið athug­un­ar­innar var með­al­ ann­ars að fá yfir­sýn yfir verk­lag félags­ins og ferla varð­andi ákvarð­ana­töku við fjár­fest­ingar og ­leggja mat á fyr­ir­komu­lag og virkni innra eft­ir­lits og áhættu­stýr­ing­ar, með til­liti til laga nr. 128/2011, um verð­bréfa­sjóði, fjár­fest­ing­ar­sjóði og fag­fjár­festa­sjóði og reglu­gerðar nr. 471/2014 um skipu­lags­kröfur rekstr­ar­fé­laga.

Stefnir hf. hefur upp­lýst Fjár­mála­eft­ir­litið um að grip­ið hefur verið til við­eig­andi ráð­staf­ana til að bæta úr þeim atriðum er lutu að athuga­semd­inni, að því er segir í til­kynn­ingu FME.

Athuga­semd var gerð við að Stefnir hf. lét á tíma­bil­inu 1. júlí 2016 til 30. júní 2017 hjá líða að til­kynna til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins alls sjö til­vik er fjár­fest­ingar fóru umfram leyfi­leg mörk fjár­fest­ing­ar­heim­ilda laga. 

Jafn­framt gerði Fjár­mála­eft­ir­litið athuga­semd við það að eign fjár­fest­ing­ar­sjóðs í rekstri Stefnis hf. í útgáfu skulda­bréfa hafi verið umfram fjár­fest­ing­ar­heim­ild­ir laga sbr. 1. mgr. 59. gr. sbr. 2. tl. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 128/2011 í tvö ár. Með hlið­sjón af atvik­um ­máls og þeim úrbótum sem Stefnir hf. hefur gripið til með breyt­ingum á verk­lagi í tengslum við til­kynn­ingar á frá­vikum frá fjár­fest­ing­ar­mörkum til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins ákvað eft­ir­litið að beita ­fé­lagið ekki við­ur­lögum vegna máls­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent