Saga ÁTVR kostaði 22 milljónir króna

Það tók þrettán ár að rita bók um fyrst 90 árin í sögu ÁTVR. Kostnaðurinn er 53 prósent yfir upphaflegri kostnaðaráætlun.

ÁTVR bók
Auglýsing

Heild­ar­kostn­aður við ritun bókar um fyrstu 90 árin í sögu Áfeng­is- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins (ÁTVR) var um 22 millj­ónir króna. Frá þessu er greint í frétt sem birt­ist á vef fyr­ir­tæk­is­ins í gær. Höf­undar bók­ar­inn­ar, sem kall­ast „Engin venju­leg versl­un“, eru þrír; þau Hildigunnur Ólafs­dótt­ir, Sum­ar­liði R. Ísleifs­son og Sverrir Jak­obs­son. ÁTVR er í eigu íslenska rík­is­ins.

Þrettán ár eru síðan að ritun bók­ar­innar hófst. Kjarn­inn óskaði eftir upp­lýs­ingum um hversu mikið verk­efnið hefði kostað í lok apr­íl. Þá vildu stjórn­endur ÁTVR ekki upp­lýsa um það og sögð­ust ætla að gera það með frétt á heima­síðu sinni í nán­ustu fram­tíð.

Í upp­­haf­­legri kostn­að­­ar­á­ætlun frá árinu 2006 var gert ráð fyrir að kostn­aður við ritun og útgáfu sög­unnar væri 14,4 millj­­ón­­ir. Nú hefur verið opin­berað að end­an­legur kostn­aður sé 22 millj­ónir króna, sem er 53 pró­sent yfir upp­haf­legum kostn­aði. Í svari ÁTVR við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kemur fram að greiðslur til höf­unda voru 16 millj­ónir af kostn­aði við útgáfu. 

Auglýsing

Í frétt á heima­síðu ÁTVR um útgáfu bók­ar­innar segir að tafir hafi orðið á útgáf­unni vegna þess að ákveðið var að sagan spann­aði lengra tíma­bil í sögu ÁTVR en upp­haf­lega var lagt upp með og að tíma­frekt hefði reynst að finna rétt­hafa mynda sem birt­ust í bók­inni. Þar segir einnig að saga ÁTVR sé fram­lag til sögu lands og þjóð­ar.

Raf­ræn útgáfa af bók­inni er komin í birt­ingu á vef ÁTVR, vin­bu­din.­is. Bókin fer svo í almenna lausa­sölu hjá Penn­anum á næstu vikum og verður aðgengi­leg á helstu bóka­söfnum lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent