Ekki breytingar heldur bylting

Gervigreind er til umfjöllunar í Vísbendingu, einu sinni sem oftar.

Tækni
Auglýsing

Notkun gervi­greindar við vinnu er til umfjöll­unar í útgáfu Vís­bend­ing­ar, þar sem Lilja Dögg Jóns­dótt­ir, hag­fræð­ingur og MBA frá Harvard háskóla, heldur áfram að skrifa um breyt­ingar á störfum vegna inn­leið­ingar á tækni og gervi­greind. 

Í grein­inni er meðal ann­ars fjallað ítar­lega um alþjóð­lega könnun sem unnin var við MIT háskól­ann, sem gefur til kynna að miklar og hraðar breyt­ingar séu að eiga sér stað á hag­kerf­um, vegna inn­leið­ingar gervi­greind­ar.

Lilja Dögg Jónsdóttir, hagfræðingur og MBA frá Harvard.„Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið BCG vann ásamt MIT háskóla umfangs­mikla könnun meðal stjórn­enda fyr­ir­tækja sem gaf meðal ann­ars til kynna að 85% stjórn­enda, þvert á geira, telja gervi­greind vera lyk­il­inn að því að ná eða við­halda sam­keppn­is­for­skoti síns fyr­ir­tæk­is. 60% stjórn­enda sögðu stefnu­mótun um notkun gervi­greindar áríð­andi verk­efni, það er að segja verk­efni sem ætti að hafa for­gang. Enn sem komið er hefur aðeins um eitt af hverjum tutt­ugu fyr­ir­tækjum inn­leitt gervi­greind að ein­hverju marki en athygli vekur að það eru fyr­ir­tæki í öllum geir­um.

Auglýsing

Þetta er skýr vís­bend­ing um það sem við ættum að vita nú þeg­ar. Gervi­greind er tækni sem mun hafa áhrif á allt í kringum okk­ur, bæði í dag­legu lífi og í starfi. Þótt breyt­inga gæti enn sem komið er aðeins sums staðar þá eru þær á stefnu­skránni nær alls stað­ar. Það er raunar svo að það er varla rétt lengur að tala um breyt­ing­ar. Þetta er bylt­ing,“ segir meðal ann­ars í grein­inni, sem fer til áskrif­enda í útgáfu dags­ins á morgun.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent