Fjórðungur landsmanna telur of marga fá hér hæli

Mikill meirihluti kjósenda Miðflokksins og Flokks fólksins telur að of miklum fjölda flóttafólks sé veitt hæli á Íslandi. Alls telur 70 prósent kjósenda Flokks fólksins að of mörgum sé veitt hér hæli og 58 prósent kjósenda Miðflokksins.

Flóttamannabarn
Auglýsing

Mik­ill meiri­hluti kjós­enda Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins telur að of miklum fjölda flótta­fólks sé veitt hæli á Íslandi eins og staðan er í dag. Alls telur 70 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins að of mörgum sé veitt hér hæli og 58 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins. Tæpur þriðj­ungur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur of marga flótta­menn fá hæli eða 32 pró­sent og 55 pró­sent telur fjöld­ann hæfi­leg­an. Þetta kemur fram í nýlegri könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 2. til 12. mars 2018.

Aðeins sex pró­sent kjós­enda Við­reisnar telja að hér fái of margir flótta­menn hæli og telja 50 pró­sent þeirra að fjöld­inn sé of lít­ill. Aðeins 8 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar telja flótta­menn sem hér fá hæli of marga og aðeins 9 pró­sent kjós­enda Pírata.

Nær helm­ingur lands­manna eða 44,9 pró­sent taldi að fjöldi þess flótta­fólks sem veitt er hæli á Íslandi væri nægi­leg­ur. Alls töldu 29,4 pró­sent svar­enda of lít­inn fjölda flótta­manna fá hæl­isveit­ingu á Íslandi en 25,7 pró­sent kváðu of mik­inn fjölda flótta­fólks fá hæli á land­inu.

Auglýsing

Afstaða gagn­vart hæl­isveit­ingum til flótta­fólks hafði lítið breyst frá skoð­ana­könnun MMR sem fram­kvæmd var í febr­úar 2017, þar sem 24 pró­sent svar­enda sögðu fjölda flótta­fólks sem veitt er hæli á Íslandi vera of mik­inn, 45 pró­sent sögðu fjöldan hæfi­legan og 31 pró­sent sögðu fjöldan of lít­inn. Hlut­föll svar­enda í öllum hópum helst nær óbreytt á milli ára og eru innan 95 pró­senta vik­marka.

Nokkurn mun má sjá á afstöðu eftir búsetu en 36 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins töldu hæl­isveit­ingar til flótta­fólks vegar ófull­nægj­andi, sam­an­borið við 33 pró­sent íbúa lands­byggð­ar­inn­ar. Lands­byggð­ar­búar voru hins vegar lík­legri til að segja hæl­isveit­ingar nægj­an­leg­ar, 54 pró­sent, heldur en svar­endur af höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 40 pró­sent.

Mun var einnig að finna þegar litið var til mennt­unar svar­enda en háskóla­mennt­aðir voru nokkuð lík­legri til að telja fjölda flótta­fólks sem veitt er hæli vera of lít­inn eða 45 pró­sent, sam­an­borið við svar­endur sem lokið höfðu námi eftir útskrift úr grunn- (23 pró­sent) eða fram­halds­skóla (21 pró­sent). Þá voru ein­stak­lingar í lægri tekju­hópum lík­legri til að telja of mik­inn fjölda flótta­fólks fá hæli á Íslandi heldur en svar­endur úr hærri tekju­hóp­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent