Gylfi svarar Ragnari Þór – Segist hafa fullt umboð

Forseti ASÍ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, fara fram með offorsi til þess að banna umræðu. Ragnar Þór mun á næstu dögum gefa út for­m­­lega van­­trausts­yf­­ir­lýs­ingu á hend­ur Gylfa.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Auglýsing

Gylfi Arn­­björns­­son for­­seti Alþýðu­sam­­bands Íslands segir að hann og Ragn­ar Þór Ing­­­ólfs­­­son for­­maður VR hafi verið ósam­­mála um leiðir í kjara­bar­áttu en að honum þyki nokkuð merki­­legt að Ragnar vilji fara fram með þessu offorsi til þess að banna umræðu. „Ég er tals­maður þess að eiga sam­tal, bæði við sam­herja mína og and­­stæð­inga og ég lít nú á Ragn­ar sem sam­herja minn. Við erum að sinna bar­áttu sömu hóp­anna,“ segir hann í sam­tali við mbl.is í dag.

Eins og fram kom í fréttum í morgun þá mun Ragn­ar Þór á næstu dög­um gefa út for­m­­­lega van­­­trausts­yf­­­ir­lýs­ingu á hend­ur Gylfa eft­ir að ASÍ neit­aði að taka niður aug­lýs­ingu um kaup­mátt­­­ar­aukn­ingu.

Ragnar Þór sendi tölvu­­­póst á fé­lags­­­menn ASÍ í vik­unni þar sem hann óskaði eft­ir því að aug­lýs­ing á face­­­book­­síðu ASÍ yrði tek­in nið­­ur, ann­­­ars myndi hann ásamt öðrum for­­­mönn­um aðil­­ar­­­fé­laga ASÍ lýsa yfir van­­­trausti á for­­­set­ann. Hann hefur áður lýst van­­trausti á Gylfa en ætlar núna að gera það með for­m­­leg­um hætti.

Auglýsing

Til­­efnið er, sem fyrr seg­ir, mynd­­band á veg­um ASÍ sem VR og Fram­­sýn hafa sagt gera lítið úr kjara­bar­áttu verka­­fólks. Farið er yfir þróun kjara­­mála í mynd­­band­inu und­an­farna ára­tugi og færð rök fyr­ir því að „vel skipu­lögð sókn með raun­hæf lang­­tíma­­mark­mið“ hafi skilað launa­­fólki meiri kjara­­bót en átök fyrri ára­tuga. Kröfu um að taka mynd­­bandið niður var hafnað af ASÍ.

„Það er nátt­úru­­lega ekk­ert nýtt að Ragn­ar lýsi yfir van­­trausti á mig. Hann hef­ur gert það áður eins og haft er eft­ir hon­um í frétt­inni. Nú ætl­­ar hann að gera það með for­m­­leg­um hætti og ég bíð bara spennt­ur eft­ir því að sjá hvernig það verð­ur,“ seg­ir Gylfi í sam­tali við mbl.­is. Hann bend­ir jafn­framt á að næsta þing ASÍ fari fram í októ­ber í haust og fram að því hafi hann fullt umboð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent