Um 2 þúsund hótelherbergi Icelandair til sölu

Icelandair Group hefur ákveðið að setja hótel sín í söluferli. Um er að ræða 1.937 hótelherbergi. 876 í Reykjavík og 450 á landsbyggðinni.

flugturn-a-reykjavikurflugvelli_15422737469_o.jpg
Auglýsing

Icelandair Group hefur ákveðið að selja Icelandair Hot­els og fast­eignir sem til­heyra hót­el­rekstri, en sam­tals rekur fyr­ir­tækið 13 hót­el. Þá rekur fyr­ir­tækið einnig tíu sum­ar­hótel undir merkjum Eddu hót­ela um allt land. 

Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, að fyr­ir­tækið sé nú að stíga skref í sam­ræmi við nýtt skipu­lag, sem kynnt var í upp­hafi árs­ins. „Við kynntum nýtt skipu­lag í upp­hafi árs­ins þar sem við skiptum starf­semi félags­ins í tvennt; ann­ars vegar alþjóða­flug­starf­semi og hins vegar fjár­fest­ingar í flug­starf­semi og ferða­þjón­ustu. Við stígum nú næsta skref og höfum ákveðið að hefja ferli sem miðar að því að selja meiri­hluta í hót­el­fé­lagi okk­ar; Icelandair Hot­els. Við horfum með sama hætti á þær fast­eignir sem til­heyra þessum rekstri. Icelandair Hot­els er í fremstu röð á Íslandi, hefur sterka mark­aðs­stöðu, er vel rekið og með frá­bært starfs­fólk. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á félag­inu að und­an­förnu, bæði frá inn­lendum og erlendum aðil­um. Mark­mið okkar með þess­ari breyt­ingu er að skerpa enn frekar á kjarna­starf­semi okk­ar, alþjóða­flug­starf­sem­inni. Þar ætlum við að fjár­festa í frek­ari vexti félags­ins, í staf­rænum lausnum, auk­inni sjálf­virkni og nýjum flug­vél­u­m,“ segir Björgólf­ur. 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Auglýsing

Gengi hluta­bréfa Icelandair Group hefur fallið nokkuð að und­an­förnu, eða um 14,1 pró­sent það sem af er ári. Mark­aðsvirði félags­ins er nú 65 millj­arðar en mest hefur það verið um 180 millj­arðar á und­an­förnum fimm árum. 

Hót­elin þrettán sem Icelandair Group reka eru Reykja­vík Natura, Reykja­vík Mar­ina, Hilton Reykja­vík Nor­dica, Canopy Reykja­vik | City Centre, Reykja­vík Kon­súlat Hótel og Hótel Alda. Á lands­byggð­inni eru Icelandair hótel á Akur­eyri, við Mývatn og á Hér­aði. Einnig eru sér­leyf­is­hótel á Flúð­um, Klaustri, Hamri og í Vík. 

Um er að ræða alls 1.937 her­bergi á land­inu öllu, 876 í Reykja­vík og 450 her­bergi á lands­byggð­inni í rekstri allt árið en þar að auki 611 Eddu hót­el­her­bergi í sum­ar­rekstri. Þá stefna Icelandair Hot­els að opnun nýs hót­els við Aust­ur­völl í sam­starfi við Hilton árið 2019.

Sam­hliða ákvörðun um að setja Icelandair Hot­els í sölu­ferli hefur verið ákveðið að Iceland Tra­vel  og VITA verði hluti af kjarna­starf­semi Icelandair Group. Til­gangur þess er að styrkja enn frekar sölu­starf­semi á pakka­ferðum og tengdum þjón­ustu­þáttum innan Icelandair Group.

Hagn­aður Icelandair Group í fyrra nam um 37 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um fjórum millj­örðum króna. Fyr­ir­tækið var með eigið fé upp á tæp­lega 600 millj­ónir Banda­ríkja­dala í lok árs, eða sem nemur um 60 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent