Davíð ætlar sér að vera lengi áfram á Morgunblaðinu

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins segist ekki vera bitur út í vinstri stjórnina sem kom honum út úr Seðlabankanum. Ísland hafi elt losaragang Evrópusambandsins fyrir hrun og því fór sem fór. Óskar Katrínu Jakobsdóttur velfarnaðar.

Davíð Oddsson
Auglýsing

Davíð Odds­son rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins ætlar að rit­stýra blað­inu í mörg ár í við­bót. Þetta sagði hann í sam­tali við Pál Magn­ús­son þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í útvarps­þætt­inum Þing­vellir á K100 í morg­un.

Aðspurður um hvort hann hafi hugsað sér til hreyf­ings haf­andi verið á blað­inu nú í tæp níu ár og orð­inn sjö­tug­ur, sagði Davíð að hann hafi engin til­mæli fengið frá eig­endum Árvak­urs, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, og líti því svo á að hann geti verið þar áfram í fimm, sex til sjö ár.

Davíð kom víða við í við­tal­inu. Hann sagði hrunið hafa markað þátta­skil þegar kemur að vel­gengi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Sú rík­is­stjórn flokks­ins sem tók við af vinstri stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur árið 2013 hafi ekki gert nein skil, engin mikil breyt­ing hafi orðið eftir að sú stjórn tók við, engin kafla­skil. Fólk verði að hafa sann­fær­ingu fyrir því að flokkur skipti máli í rík­is- eða sveit­ar­stjórn.

Auglýsing

Um hrunið sagði Davíð að Íslandi hafi verið að elta los­ara­gang Evr­ópu­sam­bands­ins, við höfum ekki haft leyfi til að setja hér strang­ari reglur en þar giltu. Nú sé nauð­syn­legt að hafa reglur skýrar varð­andi upp­skipt­ingu banka­kerf­is­ins.

Davíð sagð­ist í árs­byrjun árið 2008 hafa farið á fund helstu for­ystu­manna rík­is­stjórn­ar­innar til að vara þá við en það hafi ekki hreyft við þeim þar sem banka­menn­irnir segðu þeim að allt væri í lagi og vís­uðu í end­ur­skoð­aða reikn­inga. Hann telur að ef það hefði sýnt sig út á við að Seðla­bank­inn, rík­is­stjórnin og Fjár­mála­eft­ir­litið hefðu allt það ár verið að ham­ast í að bjarga íslenska fjár­mála­kerf­inu hefði það ef til vill breytt því hvernig aðrir aðilar sæju Ísland þegar á hólm­inn var komið og vís­aði sér­stak­lega í Gor­don Brown fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem setti hryðju­verka­lista í hrun­inu. Á hann hafi hins vegar ekki verið hlust­að. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dóttir þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra hafi kallað þetta útaustur eins manns og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þáver­andi mennta­mála­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi, eftir að Glitnir var tek­inn yfir, talað um að ekki ætti að dramat­ísera mál­ið. Hann sagð­ist ekki geta úti­lokað að ein­hverju hefði verið hægt að breyta þó hann geti ekki sannað það.

Davíð sagð­ist telja að ekki hafi verið þægi­legt að búa til aðra rík­is­stjórn en þá sem nú sit­ur. Stjórn með Mið­flokki og Fram­sókn saman hafi ekki verið með í spil­unum þar sem for­maður Fram­sóknar hafi verið harður á því að vilja ekki vera með Mið­flokn­um, „ætlar að drepa þann flokk af sér“. Davíð sagð­ist telja að skyn­sam­legra væri að ná þessum hópum saman í eitt afl aft­ur. Hann sagð­ist kunna vel við Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­mann Mið­flokks­ins, hafi þekkt for­eldra hans, afa og ömmu vel.

Um brott­hvarf hans úr Seðla­bank­anum sagð­ist Davíð ekki vera bitur út í þáver­andi stjórn­völd, Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­grím J. Sig­fús­son. Hann sagði þó að þetta hafi verið í eina skiptið á Vest­ur­löndum sem ráð­ist hafa verið á sjálf­stæði Seðla­banka og að hann hafi tekið það nærri sér að hinum tveimur seðla­banka­stjór­unum hafi verið bolað í burtu vegna hans. Eðli­legra hefði verið sam­kvæmt Davíð að ljúka rann­sókn­ar­skýrsl­unni af sem þá hafði verið sett af stað, og ákveða svo hvort þeir ættu að vera áfram í bank­an­um. „Mér var mjög brugðið að þetta skyldi hafa gerst með þessum hætt­i.“ Hann sagð­ist telja að þessar aðfarir hafi „lækkað risið á þessu fólki“. Ávallt hafi verið gott á milli hans og Jóhönnu en að hann telji að hún hafi orðið að gera þetta, hún hafi borgað fyrir for­sæt­is­ráð­herra emb­ættið með þessu. Þá sagð­ist hann telja að Stein­grímur geti reynst ágætur þing­for­seti og að ómældur vilji sé í þjóð­fé­lag­inu um að gefa Katrínu Jak­obs­dóttur tæki­færi til að vera for­sæt­is­ráð­herra og vonar að henni farn­ist vel.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent