Gengi krónunnar veikst gagnvart öllum helstu myntum

Gengi krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum hefur veikst, hægt og bítandi, að undanförnu. Seðlabankinn gerir þó ráð fyrir að gengi krónunnar verði áfram á svipuðum slóðum og það er nú.

peningar
Auglýsing

Gengi krón­unnar hefur veikst um rúm­lega 10 pró­sent gagn­vart evru og danskri krónu, 9 pró­sent gagn­vart breska pund­inu og fimm pró­sent gagn­vart Banda­ríkjdala, á und­an­förnu ári. Geng­is­sveifl­urnar hafa verið þó nokkrar, bæði til styrk­ingar og veik­ing­ar, en sé litið yfir síð­ustu tólf mán­uði þá hefur gengi krón­unnar veikst gagn­vart öllum helstu við­skipta­mynt­um.

Krónan telst sterk, eins og geng­is­skrán­ingin er nú, og hafa birst að und­an­förnu áhyggju­radd­ir, meðal ann­ars frá útflutn­ings­fyr­ir­tækj­um, vegna þessa.

Á und­an­förnum þremur vikum hefur gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal veikst nokkuð skarpt, en Banda­ríkja­dalur kost­aði fyrir skemmstu 99 krónur og en kostar nú 105 krón­ur.

Auglýsing

Þrátt fyrir að gengi krón­unnar hafi verið að veikjast, hægt og bít­andi, þá telur Seðla­banki Íslands að mestar líkur séu til þess, að gengi krón­unnar hald­ist áfram nokkuð stöðugt miðað við það sem hún er í dag, fram á næsta ár, en sú spá birt­ist í nýj­ustu útgáfu Pen­inga­mála.

For­send­urnar eru þó þær, að áfram verði mynd­ar­legur afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum við útlönd. Ferða­þjón­usta hefur verið burð­ar­stólp­inn í útflutn­ings­tekjum þjóð­ar­búss­ins und­an­farin ár, en í fyrra voru gjald­eyr­is­tekjur vegna hennar um 40 pró­sent af heild­inn­i. 

Flestar hag­spár fyrir þetta ár, gerðu ráð fyrir áfram­hald­andi vexti ferða­þjón­ust­unnar á þessu ári, en útlit er fyrir hægja muni nokkuð á þeim vexti. Seðla­bank­inn tekur fram í spá sinni, að allt sé óvissu háð í spánni, og að ef það verði tölu­verður sam­dráttur í ferða­þjón­ustu, þá muni það koma fram í veik­ara gengi krón­unn­ar.

Í apríl mæld­ist í fyrsta skipti sam­dráttur milli ára, þegar um 4 pró­sent fækkun var á komu ferða­manna til lands­ins, miðað við sama mán­uði í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent