Telja Eimskip og Samskip hafa átt með sér ólöglegt samráð

Félögin er sögð hafa brotið gegn samkeppnislögum.

7DM_9928_raw_2243.JPG
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að Eim­skip og Sam­skip hafa hafa brotið lög. Sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum eft­ir­lits­ins telur það að félögin hafi átt með sér ólög­mætt sam­ráð um ára­bil með það að mark­miði að raska sam­keppni. Það telst sam­keppn­islaga­brot og nær það til alls EES-­mark­aðs­svæð­is­ins. 

Þetta kemur fram í and­mæla­skjali sem eft­ir­litið sendi félög­unum síð­degis í dag, og hefur Eim­skip þegar birt það á vef kaup­hall­ar­inn­ar, en félagið er skráð á mark­að.

Komið hefur fram, að stjórn­endur félag­anna hafa stöðu grun­aðra í rann­sókn­inni á mál­inu, en hún hófst með hús­leitum árið 2013, en rann­sókn­ar­tíma­bilið er fyrir árin 2008 til 2013.

Auglýsing

Í skjal­inu felst ekki ekki bind­andi stjórn­valds­á­kvörðun heldur er um frum­at­hugun að ræða, en engu að síður hafa and­mæla­skjalið verið birt opin­ber­lega. Félögin fá frest til 7. sept­em­ber næst­kom­andi til þess að bregð­ast við ásök­un­um.

Samskip er að mestu í eigu Ólafs Ólafssonar.

Í til­kynn­ingu frá Eim­skip segir að félagið muni nú hefj­ast handa við að gera athuga­semdir við það sem fram kemur í frum­at­hugun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. „Eim­skip barst í dag eftir lokun mark­aða and­mæla­skjal I frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sem er liður í máls­með­ferð rann­sókn­ar­innar frá 2013. Skjalið felur í sér frum­mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en ekki bind­andi stjórn­valds­á­kvörð­un. Það er ritað í því skyni að stuðla að því að málið verði að fullu upp­lýst áður en ákvörðun er tekin og til þess að auð­velda félag­inu að nýta sér and­mæla­rétt sinn skv. stjórn­sýslu­lög­um. Í and­mæla­skjali I er kom­ist að þeirri frum­nið­ur­stöðu að Eim­skip og Sam­skip hafi haft með sér ólög­mætt sam­ráð á rann­sókn­ar­tíma­bili máls­ins 2008 til 2013 og brotið þannig gegn 10. gr. sam­keppn­islaga og 53. gr. EES samn­ings­ins, en reifun ætl­aðra brota er að finna í hjálögðu fylgi­skjali sem er sam­an­tekt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um and­mæla­skjalið og rann­sókn­ina. Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um mögu­lega sekt­ar­fjár­hæð, komi til henn­ar.

Í and­mæla­skjal­inu er frummati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins lýst á þeim atvikum máls­ins þar sem rann­sóknin er lengst kom­in. Telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið því rétt að veita félag­inu færi á því að koma að skrif­legum athuga­semdum vegna þess­ara atvika. Jafn­framt stefnir Sam­keppn­is­eft­ir­litið að því að senda félag­inu við­bótar and­mæla­skjal, and­mæla­skjal II, eins fljótt og unnt er. Félagið hefur ekki upp­lýs­ingar um hvenær það verð­ur. Í því verður fjallað um hugs­an­leg við­ur­lög og mögu­lega þörf á fyr­ir­mælum vegna 16. gr. sam­keppn­islaga. Í and­mæla­skjali II verður metið hvort gögn eða upp­lýs­ingar sem kunna að ber­ast Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu frá lög­reglu eða ákæru­valdi kalli á breyt­ingar á frummati eft­ir­lits­ins. Að fengnu and­mæla­skjali II mun félag­inu verða aftur gef­inn kostur á að tjá sig um það og málið í heild sinni og eftir atvikum koma að frek­ari sjón­ar­miðum vegna efn­is­at­riða and­mæla­skjals I. Ef athuga­semd­ir, skýr­ingar eða ný gögn þykja gefa til­efni til getur frum­mat og álykt­anir sem fram koma í and­mæla­skjali I tekið breyt­ing­um.

Eim­skip mun nú hefj­ast handa við athuga­semdir við and­mæla­skjalið og hefur verið veittur frestur til 7. sept­em­ber 2018 til að koma að gögnum og athuga­semdum við and­mæla­skjal I,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent