Kröftugri hagvöxtur í byrjun árs en reiknað var með

Hagvöxtur á fyrstu mánuðum ársins mældist 5,4 prósent, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

7DM_9761_raw_2226.JPG
Auglýsing

„Hag­vöxtur mæld­ist 5,4% á fyrsta fjórð­ungi árs­ins borið saman við sama tíma­bil í fyrra. Þetta er tölu­vert meiri vöxtur en verið hefur á síð­ustu fjórð­ungum og þarf að fara aftur til 4. árs­fjórð­ungs 2016 til að sjá hærri töl­ur. Hag­vöxtur var bor­inn uppi af vexti útflutn­ings, auk­inni fjár­muna­myndun og einka­neyslu. Áhrif útflutn­ings­ins voru þó mest og voru þau til jafns við sam­an­lögð áhrif einka­neyslu og fjár­fest­ing­ar.“

Þetta segir í Hag­sjá Lands­bank­ans, þar sem fjallað er nýj­ustu hag­vaxt­ar­tölur Hag­stofu Íslands.

Vöxtur einka­neyslu hefur dreg­ist nokkuð saman milli ára, en hann var um tíu pró­sent í fyrra en mæld­ist tæp­lega 6 pró­sent í byrjun þessa árs. 

Auglýsing

Íbúða­fjár­fest­ing er kröftug um þessar mund­ir, enda talið að byggja þurfi yfir 10 þús­und íbúðir á næstu þremur árum til að ná meira jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. 

Heild­ar­fjár­fest­ing jókst um 11,6% á tíma­bil­inu milli­ ára og var bor­inn uppi af auk­inni atvinnu­vega- og ­í­búða­fjár­fest­ingu, að því er segir í hag­sjánn­i. 

Atvinnu­vega­fjár­fest­ing jókst um 7,1% en íbúða­fjár­fest­ing um 38% en mjög mik­ill vöxtur hefur verið í íbúða­fjár­fest­ingu á síðust­u miss­erum, og má segja að hún sé stóri áhrifa­þátt­ur­inn í hag­vaxt­ar­töl­unum í upp­hafi árs­ins. 

Opin­ber fjár­fest­ing jókst hins veg­ar ein­ungis um 2,2% sem er tölu­vert minni vöxtur en á öllum fjórð­ungum síð­asta árs. Að með­al­tali jókst fjár­fest­ing hins opin­bera um 22,6% á síð­asta ári. Fjár­fest­ing í skipum og flug­vélum er liður sem hef­ur oft tölu­verð áhrif á atvinnu­vega­fjár­fest­ingu. Sé lit­ið fram­hjá fjár­fest­ingu í skipum og flug­vélum jókst at­vinnu­vega­fjár­fest­ing um 5,5% og má af því ráða að fjár­fest­ing í skipum og flug­vélum hafi auk­ist milli­ ára.

Vöru­út­flutn­ingur verið að aukast

Útflutn­ingur jókst um 10,2% sem er mesti vöxt­ur hans síðan á þriðja fjórð­ungi árs­ins 2016. Þenn­an ­mikla vöxt má rekja til 17,5% aukn­ing­ar vöru­út­flutn­ings milli ára. Sú aukn­ing var tölu­vert ­meiri en í þjón­ustu­út­flutn­ingi „sem eru tölu­verð ­tíð­indi því að vöxtur þjón­ustu­út­flutn­ings hefur ver­ið ­meiri en vöru­út­flutn­ings á síð­ustu árum,“ segir í hag­sjánni. Fara þarf aftur til 2. fjórð­ungs 2014 til að finna meiri vöxt í vöru­út­flutn­ingi en þjón­ustu­út­flutn­ingi. Þenn­an ­mikla vöxt í vöru­út­flutn­ingi má rekja til mik­ill­ar aukn­ingar í útflutn­ingi þorsks milli ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent