Velferðarráðuneytið brást í málum Braga

Samkvæmt niðurstöðu óháðrar úttektar á málsmeðferð velferðarráðuneytisins á málum forstjóra Barnaverndarstofu samrýmdist hún ekki grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins.

Kjartan Bjarni Björgvinsson og Bragi Guðbrandsson.
Kjartan Bjarni Björgvinsson og Bragi Guðbrandsson.
Auglýsing

Nið­ur­staða óháðrar úttektar á máls­með­ferð og efn­is­legri athugun vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í kjöl­far kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar liggur nú fyrir en hún var kynnt í dag á Þjóð­minja­safn­in­u. 

Í nið­ur­stöðum úttekt­ar­inn­ar, sem kynnt var rík­is­stjórn­inni í dag, voru gerðar athuga­semdir við að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi full­yrt í bréfi sínu til Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn að for­stjór­inn hafi farið út fyrir verk­svið sitt með því að beina mál­inu ekki til Emb­ætti sýslu­manns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjartan Bjarni Björg­vins­­son hér­­aðs­­dóm­­ari fram­kvæmdi úttekt­ina með lið­sinni Krist­ínar Bene­dikts­dótt­ur, dós­ent við laga­­deild Háskóla Íslands. Í henni var farið yfir fyr­ir­liggj­andi gögn máls­ins og máls­­með­­­ferð við­kom­andi stjórn­­­valda, það er þeirra barna­vernd­­ar­­nefnda sem tengj­­ast við­kom­andi mál­um, Barna­vernd­­ar­­stofu og vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­­is.

Auglýsing

Þá eru einnig gerðar athuga­semdir við það að í úttekt­inni hafi ráðu­neytið kom­ist að nið­ur­stöðu í máli for­stjór­ans án þess að vera gef­inn kostur á að kynna sér gögnin sem nið­ur­staðan var byggð á og veitt tæki­færi til að tjá sig um þau.

Í úttekt­inni er jafn­framt lýst efa­semdum um að ráðu­neytið hafi haft full­nægj­andi stoð um aðfinnslu um for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. 

Máls­með­ferð ráðu­neyt­is­ins sam­rýmd­ist ekki grund­vall­ar­reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins, sam­kvæmt úttekt­inn­i. Að því er snertir við­brögð ráðu­neyt­is­ins við þeim kvört­unum sem barna­vernd­ar­nefndir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu komu á fram­færi í nóv­em­ber 2017 um starfs­hætti Barna­vernd­ar­stofu og fram­göngu starfs­fólks stofn­un­ar­innar er það nið­ur­staða úttekt­ar­innar að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi ekki gert full­nægj­andi ráð­staf­anir til að upp­lýsa hvað væri hæft í þeim ávirð­ingum sem bornar voru á barna­vernd­ar­stofu og starfs­fólk henn­ar.

„Þetta lét ráðu­neytið hjá líða þótt það hefði sjálft lýst þeirri afstöðu í bréfi í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að athuga­semdir barna­vern­ar­nefnd­anna þriggja gæfu til kynna að veru­leg vanda­mál hefðu skap­ast í barna­vernd­ar­starfi á Íslandi og að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu kynni að hafa brotið af sér í starf­i,“ sagði Kjartan í kynn­ing­unn­i. 

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum þess­arar úttektar voru þær ávirð­ingar sem settar voru fram og beindust að störfum for­stjór­ans þess eðlis að ráðu­neyt­inu bar að afla frek­ari upp­lýs­ingar um þær til þess að geta tekið afstöðu til þess hvort til­efni væri til að gera frek­ari athugun á störfum Barna­vernd­ar­stofu.

Tekið er fram að nið­ur­stöð­urnar tak­markast við það atvik sem þar er lýst sam­kvæmt gögnum ráðu­neyt­is­ins. Ekki er í úttekt­inni tekin afstaða til sam­skipta ráð­herra við Alþingi, hvernig ráð­herra sé rétt að haga afgreiðslu um end­ur­upp­töku máls­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent