Airbnb bætir ferðaþjónustu á kostnað íbúðamarkaðs

Umfang gistiþjónustuvefsins Airbnb hefur aukið sveigjanleika ferðaþjónustunnar á Íslandi en hækkað íbúðaverð. Einnig verða sveitarfélögin af miklum fjárhæðum vegna rangrar skráningar margra íbúðanna.

Íbúðalánasjóður telur Airbnb hafa margvísleg áhrif á íslenskt efnahagslíf.
Íbúðalánasjóður telur Airbnb hafa margvísleg áhrif á íslenskt efnahagslíf.
Auglýsing

Aukn­ing Air­bn­b-g­ist­ingar virð­ist hafa aukið sveigj­an­leika ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi, en dregið úr stöð­ug­leika á íbúða­mark­aði á sama tíma. Þar að auki er metið að sveit­ar­fé­lög verði af hund­ruðum millj­ónum króna á ári hverju vegna rangrar skrán­ingar Air­bn­b-­í­búða í stöðugri útleigu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu hag­deildar Íbúða­lána­sjóðs um stöð­u A­ir­bn­b á Íslandi.

Í skýrsl­unni er farið yfir umfang Air­bn­b-g­ist­ingar á Íslandi, en í mars síð­ast­liðnum voru skráðar um 6.300 gisti­ein­ingar á síð­unni. Þar af taldi Íbúða­lána­sjóður að 1.400 íbúðir og 500 stök her­bergi voru í stöðugri útleigu og ekki í hefð­bund­inni notkun sem íbúð­ar­hús­næði. Sú tala virð­ist hafa minnkað tölu­vert, en í ágúst í fyrra má ætla að hátt í 2.000 íbúðir og 800 her­bergi voru í stöðugri útleigu á Airbnb.

Auglýsing

30% skráðra íbúða og her­bergja á A­ir­bn­b voru stað­sett í mið­borg og vest­urbæ Reykja­vík­ur, 37% ann­ars staðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 34% utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Sam­kvæmt gögn­um Air­dna er Reykja­vík í öðru sæti meðal helstu höf­uð­borga í Vest­ur- og Suð­ur- Evr­ópu þegar kemur að fjölda Air­bn­b-­skrán­inga miðað við höfða­tölu, en þær séu aðeins fleiri í Lissa­bon.

Árið 2016 voru vergar tekjur af útleigu á A­ir­bn­b hér á landi um 9,4 millj­arð­ar, en í fyrra voru þær um 19,7 millj­arð­ar. Vöxtur tekn­anna hefur því numið 110% milli ára. Gistin­óttum á veg­um A­ir­bn­b hefur einnig fjölg­að, en sam­kvæmt skýrsl­unni hefur aukn­ing hennar að stórum hluta staðið undir miklum vexti í gist­ingu erlendra ferða­manna und­an­farin tvö ár. Þær tölur séu í ósam­ræmi við þá umræðu innan ferða­þjón­ust­unnar að fjölgun erlendra far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl hafi ekki skilað sér í fjölg­un g­istin­átta. 

Hefur áhrif á fast­eigna­verð

Íbúða­lána­sjóður ályktar að svokölluð Air­bn­b-væð­ing ferða­þjón­ust­unnar hafi aukið við­náms­þrótt grein­ar­innar gagn­vart ytri áföll­um, en hafi gert það að nokkru leyti á kostnað stöð­ug­leika á íbúða­mark­aði. Skamm­tíma­leiga íbúða hafi auk­ist tölu­vert á und­an­förnum árum, en það valdi ruðn­ings­á­hrif á fast­eigna­mark­að­inn og hækki fer­metra­verð. Sam­kvæmt útreikn­ingum skýrsl­unnar eru upp­söfnuð áhrif Air­bn­b-g­ist­ingar á hækk­un fast­eigna­verðs á Íslandi árin 2015-2017 metin allt að 5-9 pró­sentu­stig. 

Skrán­ingu ábóta­vant

Einnig er skrán­ingu á íbúðum í stöðugri Air­bn­b-út­leigu ábóta­vant, en í skýrsl­unni er gert ráð fyrir að að minnsta kosti 60% þeirra séu ekki skráð sem atvinnu­hús­næði, þrátt fyrir að lög um gisti­staði krefj­ist þess. Hag­deild Íbúða­lána­sjóðs metur svo að sveit­ar­fé­lög verði árlega af hund­ruðum millj­óna króna vegna þess­arar mis­skrán­ing­ar, jafn­vel yfir millj­arði, í formi fast­eigna­gjalda vegna Air­bn­b-­í­búða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent