Eiga að hafa grætt um 61 milljónir með svikum í Icelandair

Innherjasvikamál fyrrverandi forstöðumanns leiðakerfisstjórnunar Icelandair og tveggja annarra manna verður þingfest í vikunni en talið er að brotin hafi staðið yfir í rúmlega sextán mánuði.

Icelandair - Mynd: Eric Salard
Auglýsing

Inn­herja­svika­mál fyrr­ver­andi for­stöðu­manns leiða­kerf­is­stjórn­unar Icelanda­ir, auk tveggja ann­arra, verður þing­fest í vik­unni en talið er að brot mann­anna hafi staðið yfir í rúm­lega sextán mán­uði. Upp­töku á rúmum 90 millj­ónum króna er kraf­ist í mál­inu.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í morgun.

Jafn­fram er greint frá því að talið sé að menn­irnir þrír sem grun­aðir eru um að hafa not­fært sér inn­herj­a­upp­lýs­ingar í við­skiptum með hluta­bréf í Icelandair hafi hagn­ast um rúm­lega 61 milljón króna með gjörn­ingn­um. Hin ætl­uðu brot eigi að hafa átt sér stað á tíma­bil­inu frá októ­ber 2015 til febr­úar 2017.

Auglýsing

Einn hinna ákærðu er sam­kvæmt Frétta­blað­inu fyrr­ver­andi for­stöðu­maður leiða­kerf­is­stjórn­unar Icelandair en hann hafði stöðu frum­inn­herja hjá félag­inu. „Hinir tveir eru grun­aðir um að hafa nýtt sér upp­lýs­ingar frá honum til að hagn­ast á við­skiptum með hluta­bréf í félag­inu. Auk mann­anna þriggja er félagið Fastrek, sem hét áður VIP Tra­vel, ákært í mál­inu en við­skiptin með hlut­ina voru gerð í nafni félags­ins.“

Enn fremur kemur fram að VIP Tra­vel hafi eitt sinn verið tengt kampa­víns­klúbbnum VIP Club en greiðslur til klúbbs­ins hafi farið í gegnum félag­ið. Einn hinna ákærðu sé fyrr­ver­andi eig­andi Fast­reks. Sá hafi jafn­framt verið áður rekstr­ar­stjóri kampa­víns­klúbbs­ins Shoot­ers sem nú sé starf­ræktur á sama stað og VIP Club var áður til húsa.

„Fyrr­greindum for­stöðu­manni og rekstr­ar­stjóra er í mál­inu gefið að sök að hafa í októ­ber og nóv­em­ber 2015 nýtt VIP Tra­vel til að kaupa hluti í Icelandair til þess eins að selja hlut­ina skömmu eftir að þriðja árs­fjórð­ungs­upp­gjör félags­ins var birt. Þeim er gefið að sök að hafa keypt sölu­rétt í júlí 2016 en þá veðj­uðu þeir á móti á lækkun hluta­bréf­anna í kjöl­far ann­ars árs­fjórð­ungs­upp­gjörs þess árs.

Að end­ingu er for­stöðu­mann­inum og rekstr­ar­stjór­anum gefið að sök að hafa í jan­úar og febr­úar 2017 keypt sölu­rétt í félag­inu og veðjað á að verð á hlutum í því myndi lækka í kjöl­far afkomu­við­vör­unar sem birt var 1. febr­úar það ár. Hagn­aður mann­anna af þessu á að hafa numið tæpum 25 millj­ónum króna.

Rekstr­ar­stjór­inn á síðan að hafa hvatt þriðja mann­inn, sem ákærður er í mál­inu, til hins sama. Á hann að hafa keypt sölu­rétt og selt í félag­inu sama dag og afkomu­við­vör­unin var gefin út. Á hagn­aður vegna þessa að hafa numið rúmum 20 millj­ónum króna,“ segir í frétt Frétta­blaðs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent