Bergþóra hæfust að mati nefndarinnar

Hæfnisnefnd um embætti forstjóra Vegagerðarinnar mat Bergþóru Þorkelsdóttur dýralækni hæfasta í starfið.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta-og menningamálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta-og menningamálaráðherra.
Auglýsing

Berg­þóra Þor­kels­dóttir dýra­læknir var met­inn hæf­asti umsækj­andi af hæfn­is­nefnd fyrir skipun í emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­inn­ar. Þetta kemur fram í nýbirtum gögnum sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Greint var frá skipun Berg­þóru í emb­ættið í gær, en hún­ ­sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið birti hana opin­ber­lega fyrr í dag. Berg­þóra er mennt­aður dýra­lækn­ir, en hún stund­aði einnig nám í mark­aðs­fræð­u­m við Charter­ed Institu­te of ­Mar­ket­ing í Bret­landi og nam rekstr­ar- og við­skipta­fræði við Háskóla Íslands. 

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, ­sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, setti ráðn­ing­ar­ferlið í hendur Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta­mála­ráð­herra og sam­flokks­manni í Fram­sókn­ar­flokkn­um, vegna tengsla hans við Berg­þóru. 

Auglýsing

Í frétt mbl.is um málið í dag sagð­ist Lilja  hafa lagt mikla áherslu að fullt gagn­sæi ríkti í ráðn­ing­ar­ferl­inu , en það hafi verið sam­eig­in­legt álit hennar og hæfn­is­nefndar að Berg­þóra væri hæf­asti umsækj­and­inn um stöð­una. 

Álit hæfn­is­nefnd­ar­inn­ar, sem finna má hér, raðar umsækj­endum eftir átta hæfn­is­flokk­um. Þeir eru eft­ir­far­andi:

  • Mennt­un­ar­kröfur

  • Stjórn­un­ar­reynsla

  • Reynsla af rekstri og ­á­ætl­un­ar­gerð

  • Reynsla af stefnu­mótun

  • Fag­leg þekk­ing á sam­göngu­mál­um, eða atvinnu­lífi

  • Reynsla af þátt­töku í alþjóða­sam­starfi 

  • Hæfi­leikar til að miðla upp­lýs­ingum á góðri íslensku í mæltu og rit­uðu máli

  • Góð kunn­átta í ensku í mæltu og rit­uðu máli

Berg­þóra fékk fullt hús stiga í sex flokkum af átta flokk­um, en aðrir voru taldir hafa meiri fag­lega þekk­ingu á sam­göngu­málum eða atvinnu­lífi auk reynslu af þátt­töku í alþjóða­sam­starf­i. 

Líkt og mbl.is ­greinir frá vekur athygli að reynslu af verk­fræði­menntun eða verk­legum fram­kvæmdum væri ekki kraf­ist þegar emb­ættið var aug­lýst.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent