Brexit mestu vandræði sem breskir stjórnmálamenn hafa lent í lengi

Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor segir að Brexit sé að reynast Theresu May forsætisráðherra Bretlands gríðarlega erfitt, eftir afsagnir þriggja ráðherra í ríkisstjórn hennar síðasta sólarhringinn.

Theresa May Ólafur Þ Harðarson
Auglýsing

„Það hefur komið í ljós síð­ustu árin að Brexit eru mestu vand­ræði sem breskir stjórn­mála­menn hafa lent í síðan breska heims­veldið var að leys­ast upp,“ segir Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor inntur eftir við­brögðum við afsögnum þriggja

ráð­herra í rík­is­stjórn Ther­esu May í Bret­landi.

Kjarn­inn greindi frá því í dag að Boris John­son hefði sagt af sér emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra. Hann varð þannig þriðji ráð­herr­ann á innan við sól­ar­hring til að hætta í rík­is­stjórn­inni, en í gær til­kynntu þeir David Davis ráð­herra Brex­it-­­mála og Steve Baker ráð­herra úrsagnar lands­ins úr ESB að þeir hefðu yfir­gefið rík­is­stjórn­ina.

Ólafur segir bresku þjóð­ina algjör­lega klofna í tvær fylk­ingar um hvort hún vilji vera inni eða úti þegar kemur að Evr­ópu­sam­band­inu.

Auglýsing

„Í raun­inni er það alveg ótrú­legt að David Cameron hafi á sínum tíma reynt að leysa inn­an­flokksá­tök í Íhalds­flokknum með því að setja málið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Öll þró­unin síðan hefur sýnt hvað þetta er gríð­ar­lega flokið mál. Það hefur nátt­úr­lega komið í ljós að mjög margt af því sem að þeir sem studdu Brexit í þjóð­at­kvæða­greiðsl­unni héldu fram hefur bara reynst rangt. Margt af því sem Brex­it­sinn­arnir héldu að útganga úr Evr­ópu­sam­band­inu myndi færa Bret­um, það mun alls ekki ger­ast, þannig að núna erum við búin að horfa á Íhalds­flokk­inn og reyndar breska stjórn­mála­menn almennt engj­ast í tvö ár og vita ekk­ert í hvaða fót þeir eiga að stíga. Það er ennþá algjör­lega ómögu­legt að setja hver lend­ingin á end­anum verð­ur.“

Ólafur segir stöðu May bæði flókna og erf­iða.

„Nú hefur breska stjórnin náð ein­hvers konar sam­komu­lagi um ein­hvers konar mjúkt Brexit viðrist vera. Samt sem áður eru hörð­ustu Brex­it­sinn­arnir í Íhalds­flokknum mjög ósáttir við þá nið­ur­stöðu sem nátt­úru­lega sýnir sig með afsögn­ina hjá Dav­is. Staða May er nátt­úru­lega mjög flókin og erf­ið. Fyrir utan átökin í Íhalds­flokknum þá virð­ist líka Verka­manna­flokk­ur­inn tala svo­lítið út og suður í mál­inu. Þannig að ég held að það sé á þessu stigi ómögu­legt að spá nokkru um það hver þró­unin verður að öðru leyti en að hún veður mjög erf­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent