SE segir ekkert að sölu RÚV á auglýsingum á HM

Samkeppniseftirlitið gerir engar athugasemdir á auglýsingasölu RÚV í tengslum við yfirstandandi HM.

Síminn hf. sakaði RÚV um að setja víkja frá lögbundinni gjaldskrá í tengslum við sýningar HM.
Síminn hf. sakaði RÚV um að setja víkja frá lögbundinni gjaldskrá í tengslum við sýningar HM.
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir ekk­ert athuga­vert við hátt­semi RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði vegna HM í fót­bolta. Þetta kemur fram í frummati eft­ir­lits­ins  á vef sínum í dag. 

Frummatið er gefið í kjöl­far kvört­unar Sím­ans hf. auk ábend­inga ann­arra fjöl­miðla vegna hátt­semi Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði í tengslum við Heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu. Í kvörtun­inni er vikið að meintum lág­marks­kaups­skil­yrðum RÚV á til­teknum aug­lýs­inga­plássum í tengslum við sýn­ingar HM og að vikið sé frá lög­bund­inni gjald­skrá við sölu af þeim. 

Eft­ir­litið telur sig ekki hafa full­nægj­andi laga­heim­ild til rann­sóknar á mál­inu, en sam­kvæmt svari RÚV til hefur eng­inn áskiln­aður verið gerður um lág­marks­kaup og ekki verið á nokkurn hátt lagt að aug­lýsendum að ráð­stafa fé sínu í öllu eða ein­hverju leyti til RÚV. Einnig mið­að­ist gild­is­tími allra eft­ir­far­andi samn­inga ein­ungis við HM og lýkur því með mót­inu. Engin fríð­indi fylgja kaup­endum aug­lýs­inga­pláss­ins né bind­ing, hvorki í formi einka­kaupa né tryggð­ar­af­slátta. 

Auglýsing

Í ljósi svars Rík­is­út­varps­ins telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið ekki vera nægar vís­bend­ingar um að RÚV hafi með hátt­semi sinni gengið gegn sam­keppn­is­lög­um, þótt fyr­ir­tækið yrði talið vera mark­aðs­ráð­andi á aug­lýs­inga­mark­aði. Því sé ekki til­efni til frek­ari athug­unar á grund­velli heim­ildar eft­ir­lits­ins til íhlut­unar gegn athöfnum opin­berra aðila. 

Vísar eft­ir­litið m.a. til þess að fjöl­miðla­nefnd hefur eft­ir­lit með því að RÚV fari að fjöl­miðla­lög­um, en nefndin hefur þetta mál nú til skoð­un­ar.

Þrátt fyrir engar athuga­semdir við þetta athæfi tekur Sam­keppn­is­eft­ir­litið þó fram að það hafi ítrekað fjallað um stöðu RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og lagt til að hún verði end­ur­skoð­uð. Eðli­legt sé að ráðu­neyti og stjórn­völd sem fara með mál­efni RÚV taki stöðu mið­ils­ins til skoð­unar sem og þær reglur sem settar hafa verið fram til að bæta úr henn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent